mánudagur, 4. júl 2005

Jóhann Teitur Egilsson

Langalangafi minn

Þessi töffari er hann langa-lang-afi minn. Hann var snikkari, elligar trésmiður, frá Árnessýslu. Ég rak augun í þessa mynd af honum heima hjá mömmu um daginn. Það var nú aðallega það að hann er með sama yfirvaraskegg og ég.

Ég gúglaði hann og fann tvær tilvísanir (bls. 23). Það verð ég að segja að er vel af sér vikið fyrir einhvern sem var uppi löngu áður en nokkrum datt í hug að búa til internet.

Langaamma mín, sem kenndi mér að tefla og spila (og tapa), sagði stundum söguna af því þegar að hún var lítil og Jóhann fékk dætur sínar taka lýsi:

Hann gaf systrunum lýsi og þær fengu aur fyrir sem þær settu alltaf í baukinn á hillunni. Síðan fengu þær að vita þegar þær voru orðnar stórar að í hvert sinn sem lýsið var að klárast tók hann úr bauknum og keypti meira lýsi.

Henni fannst þetta gríðalega fyndið, þrátt fyrir að þetta væri á hennar kostnað - allavega svona eftirá.

2 ummææli við “Jóhann Teitur Egilsson”

  1. Já, þið eruð ansi líkir. Bæði í skeggi og sknilligáfu. Ég ætla að fá lýsisaðferðina lánaða á mín börn.

    krilli skrifaði 4.7.2005 22:53

  2. Takk fyrir það, það er víst ekki leiðum að líkjast. Jóhann var víst samkvæmt mömmu framtakssamur og átti bæði nóg af peningum og börnum. Það var alltaf talað um hann af virðingu af fjölskyldunni.

    Af áðurnefndum dætrunum hans (hann áttu reyndar líka syni) er að frétta að þær sem lifðu allar fram í háa elli (og lifa jafnvel enn níutíu-og-hver-veit-hvað gamalar).

    Borgar skrifaði 5.7.2005 19:56


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar