Fyrir mig
Ég tók mér loksins tíma í að klára nýja forsíðu fyrir undraland.com. Svo duglegur var ég að ég nennti meira að segja að fá hana til þess að virka á hroðbjóðinum frá Microsoft.
Hef ákveðið að reyna að vera svoldið duglegur í eigin kerfi næstu daga. Mögulega nenni ég að lagfæra bögga, mögulega ekki. Kannski uppfæri ég líka síðurnar hjá hyskinu mínu og bý til þessar tvær síður sem ég er búinn að lofa.
Svo ætla ég líka að kíkja á partalistann hans BRE og sjá hvort það er ekki hægt að poppa hann aðeins upp (þeas. listann, BRE er nú þegar mjög hip og kúl).
Þetta verður semsagt svakalegt SQL og CSS sukk og það finnst mér einmitt svo gaman. :-)

2 ummææli við “Fyrir mig”
Til hamingju með nýju ásjónuna! Þetta er til háborinnar fyrirmyndar!
Bassastingurinn skrifaði 25.7.2005 21:20
Takk fyrir það. Ég þurfti að vatna þetta aðeins niður til reyndar frá teikningunni og var svoldið skeptískur á þetta. Ég hugsa þó að þetta verði fagurt sem gler þegar aðeins meiri texti hefur sest þarna að.
Borgar skrifaði 25.7.2005 21:42