þriðjudagur, 14. jún 2005

Póstur frá Gautaborg

Í gær fékk ég bréf. Alvöru pappír og allt. Það var umslag límt saman úr vinnubókarörk. Inní var lítill miði sem þakkaði mér fyrir það sem ég hafði gert ásamt samlímdu pappírshulstri málað röndótt sænsku fánalitunum með vaxlitum.

Röndótta hulstrið innihélt geisladisk fullan af sænskri MP3 tónlist. Hér er listinn yfir það sem ég fékk:

  • Bob Hund - Jag rear ut min själ, allt ska bort!
  • Håkan Hellström - Känn Ingen Sorg För Mig Göteborg
  • Kent - Vapen och Ammunition
  • Nationalteatern
  • Sagor & Swing - Orgelfärger
  • Teddybears STHLM - rock'n'roll highschool
  • The Knife - Deep Cuts
  • Visor

Flest af þessu er nokkuð gegnsætt nema kannski Visor sem er sumsé blanda af sænskri vísnatónlist. Ég er rétt byrjaður að kafa í þetta og skemmti mér konunglega. :-)

2 ummææli við “Póstur frá Gautaborg”

  1. The Knife finnst mér dáldið kúl hljómsveit, allavega miðað við það litla sem ég hef heyrt. Svo hafa Rex The Dog gert æðislegt remix af "Heartbeats" sem ég mæli með.

    Úlfar skrifaði 15.6.2005 13:06

  2. aedislegt sveitaballamyndband fra theknive vid "pass it on" held eg ad thad heiti. Folk a ollum aldri i lopapeysum ad missa sig.

    gudny skrifaði 15.6.2005 13:23


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar