fimmtudagur, 12. maí 2005

Enn meira um persónuvernd á netinu

Bjarni talar um IP tölur. Enda fólk skiljanlega uggandi yfir nýjum lögum.

Ég er reyndar ekki fyllilega sammála því að vírussmitaðar tölvur, proxy-þjónar, og milliliðir eru ekki auðveld leið til þess að dyljast. Það má vera að þetta sé auðvelt fyrir menn eins og okkur Bjarna, sem höfum þannig vitneskju og úrræði, en fyrir almenning tel ég þetta ekki fýsilegar leiðir.

Það er hins vegar ekkert mál að fara á netkaffihús eða nota þráðlaust net nágrannans. Almenningur getur sem sagt alveg dulist auðveldlega ef það er ásetningur hans. :-)

Eins og mál standa núna er þetta þannig að það liggur fyrir dómur um að netveita geti haldið IP-tölu leyndri ef hún vill. Það er því lagalegt fordæmi fyrir því sem jafngildir því eiginlega að það sé í lögum.

Hins vegar geta netveitur líka bara afhent IP-tölur kúnna (og hafa gert það, sbr. DC++ málið) ef þeim sýnist, og munu sennilega ekki breyta hegðun sinni neitt.

Ef þessi lög yrðu að veruleika mundi fyrsta netveitan sem ekki vildi afhenda IP-tölu bara fara með þetta fyrir Hæstarétt, og þar yrðu lögin felld á sama grundvelli og fyrri dómur. Málið úr sögunni.

Það má ekki gleyma því þegar talað er um svona lagasetningar að þótt lög séu samþykkt á Alþingi þá þýðir það ekki að þau lifi það af að fara fyrir dóm. Það er nú þess vegna sem við skiptum valdinu niður í eins og við gerum.

Skiptir það okkur einhverju máli hvort við borgum tímakaup Alþingismanna eða Hæstaréttardómara? Hvort er dýrara fyrir okkur að láta þetta rúlla áfram í nefndum eða bara fara fyrir dóm?

3 ummææli við “Enn meira um persónuvernd á netinu”

  1. Það er töluvert af aðilum sem gera fólki auðvelt að dylja slóð sína, hvort sem er gegn greiðslu eða af hugsjónaástæðum.

    Spurðu Google um "anonymous proxy" eða "hide my IP address", þú færð fullt af svörum. Þetta er ekki flókið.

    Herra BRE skrifaði 12.5.2005 11:55

  2. Já, það er hægt að finna sér lausnir ef maður vill. Ég var ekkert að draga það í efa per se. En hversu marga þekki ég sem vita hvað "proxy" þýðir, hvað þá hvað það gerir?

    Ég þekki ekki marga sem kunna einu sinni að uninstalla forritum í Windows, hvað þá setja upp eitthvað sem er ekki klik-klik-og-komið! Ég held að þú hafir meiri trú á Jóni útí bæ en ég. ;-)

    Áhugi minn hérna er samt ekki að fara eitthvað að ræða hvað og hvernig einhver gaur útí bæ getur gert til þess að fela sig. Það er bæði tilgangslaust og hvort eð er bara ágiskanir.

    Getur einhver ekki frekar sagt mér hvers vegna Alþingi finnst ekki vera ástæða til þess að hlusta á ábendingar Persónuverndar?

    Borgar skrifaði 12.5.2005 12:25

  3. Þessvegna tók ég leitardæmið "hide my IP address". :-)

    Hlustar Alþingi yfir höfuð nokkurntímann á það sem aðhaldsstofnanir þess segja? Eru þær ekki bara lagðar niður ef þær tjá sig of mikið?

    Herra BRE skrifaði 13.5.2005 11:32


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar