miðvikudagur, 27. apr 2005

Dróttkvæðaæfing

Hvessir auga hressrar
hendur höggi lenda
Knúin mærin knáa
karate í bratta
Forðist skuluð farðað
flagðið leggur bragði
Meisið víst í vasa
vörn mót geir illgjörnum

Dúndraði þessu fram í samræðum yfir MSN og verð ég að þykjast frekar sáttur við þá þróun að mér hafi tekist að setja saman eitthvað eftir reglunum1 - þótt í það skorti kenningar og á því séu nokkur lýti… Þetta skal hafast á endanum!

1: Þ.e.a.s. eins mikið og ég kann þær. :-)


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings