miðvikudagur, 27. apr 2005
Hvessir auga hressrar
hendur höggi lenda
Knúin mærin knáa
karate í bratta
Forðist skuluð farðað
flagðið leggur bragði
Meisið víst í vasa
vörn mót geir illgjörnum
Dúndraði þessu fram í samræðum yfir MSN og verð ég að þykjast frekar sáttur við þá þróun að mér hafi tekist að setja saman eitthvað eftir reglunum1 - þótt í það skorti kenningar og á því séu [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
23:29
.
Höfundur:
Borgar .
Vakúmpakki vísnaskáldið
veröldinni í kvæði,
margoft þarf að magna dáldið
misjafnt fyrir gæði.
Ég mæli með kvæðaformúmi Baggalúts fyrir þá sem kunna gott að meta.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
17:00
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 26. apr 2005
miðvikudagur, 13. apr 2005
Emja, hrópa, orga, væla,
æja, hrína, gráta;
gala, kalla, grenja, skæla,
garga og illa láta!
Af hverju eru svona mörg samheiti um að hafa hátt? Þeir segja að Inúítar eigi svo og svo mörg orð yfir snjó af því að það er svo mikið af honum. Erum við alltaf gaulandi hérna?
Lesa áfram...
Sent klukkan:
20:45
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 12. apr 2005
Þegar maður setur inn RPM pakka á Linux kerfum þarf maður að gefa skipunina rpm með stillingunni -i (install). Þá er líka góð hugmynd að nota -h (hash style progress bar) og -v (verbose) til þess að maður sjái betur hvað er að gerast.
Dag einn, fyrir mörgum tunglum síðan, var ég að sýna Gústa þetta [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
15:14
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 10. apr 2005
Horinn góði, nasa gullið,
gómsætt snjáldurs gula drullið.
Í stanslausu kvefi,
með útferð úr nefi,
best er bara að éta sullið!
Líklega er ég bara ekki kominn á hærra þroskastig en þetta, en mér finnst ég ógeðslega fyndinn!
Lesa áfram...
Sent klukkan:
15:21
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 7. apr 2005
Suma hluti er kannski hægt að útskýra, en aldrei afsaka. Góð tilraun samt…
Lesa áfram...
Sent klukkan:
16:23
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 6. apr 2005
Ég verð að vera fullkomlega sammála frænkunni um þetta. Af hverju eru ekki einhverjir femínistar hoppandi og æpandi yfir þessu?
Annars verð ég að segja að mér líður reyndar oftast svoldið svona þegar ég opna munninn og æli út úr mér skoðunum mínum í kynjaumræðunni.
Ókeitakkbæ.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
17:34
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 1. apr 2005
Hvers vegna eru allar teiknimyndasögurnar mínar eins í dag? Það er, satt best að segja, svoldið óþægileg upplifun svona snemma dags.
Pearls Before Swine, Get Fuzzy, Foxtrot^, …
Lesa áfram...
Sent klukkan:
9:33
.
Höfundur:
Borgar .