Margur heldur mig sig
Auðvitað veistu alltaf best; enginn má þér betur. Hæglega gætirðu fengist við flest, og fátt sem þú ekki getur. Og víst eru flísarnar fáeinar faldar í augunum mínum; hvassir breyskleikans borteinar byrgja mér jafnan sýnum. En áður en aumum er úthlutað aftöku og plássi á haugum, reyndu þá gæskan að gæta að gólfefni í eigin augum.