Hvað nú?
Kerfið er orðið stöðugt í bili og þarf bara að vera í keyrslu í einhvern tíma til prufu. Einhverjir böggar verða lagaðir við og við næstu vikur en ég hugsa að ég vinni ekki mikið í þessu í bili.
Platan mín er svo gott sem tilbúin. Ég á eftir að laga endingar og smáatriði í nokkrum lögum. Spurningin er að setjast niður með lögin, skrifa lista yfir það hvað þarf að laga, og framkvæma svo. Þá þarf bara að ”mastera” hana og gefa út.
Ég er búinn að vera að losa mig við tölvur og töludót út af heimilinu. Ég er búinn að fá mig fullsaddan af því í bili að vera með hrúgur af óstarfhæfum raftækjum í kringum mig. Það sem enginn hefur áhuga á að hirða fer í tunnuna (eða á partalistann).
Það er þá spurning hvað tekur við næst? Hvernig ætlar minns að troða út frítíman sinn?
Ég er eiginlega að hugsa um að hella mér út í orðarbókargerð. Ég er búinn að vera að hugsa um þetta í langan tíma og er með heilan helling af hugmyndum.
Hverjir vilja vera memm?