fimmtudagur, 31. mar 2005
Mér er sama hvað hver segir. Nýja Daft Punk platan er alveg stórfín. Það er hægt að finna hana á Google ef vandlega er leitað.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
13:47
.
Höfundur:
Borgar .
Einhver kjáni klúðraði DNS uppsetningunni sinni. Núna bendir lénið instantfreecosmetics.com á IP tölu undir minni stjórn.
Í staðinn fyrir að láta neinn vita af þessu setti ég upp smá síðu á léninu og er eiginlega frekar bjartsýnn á að þetta lagist bara sjálfkrafa.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
13:15
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 30. mar 2005
Kerfið er orðið stöðugt í bili og þarf bara að vera í keyrslu í einhvern tíma til prufu. Einhverjir böggar verða lagaðir við og við næstu vikur en ég hugsa að ég vinni ekki mikið í þessu í bili.
Platan mín er svo gott sem tilbúin. Ég á eftir að laga endingar og smáatriði í nokkrum [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
14:19
.
Höfundur:
Borgar .
þriðjudagur, 29. mar 2005
Auðvitað veistu alltaf best;
enginn má þér betur.
Hæglega gætirðu fengist við flest,
og fátt sem þú ekki getur.
Og víst eru flísarnar fáeinar
faldar í augunum mínum;
hvassir breyskleikans borteinar
byrgja mér jafnan sýnum.
En áður en aumum er úthlutað
aftöku og plássi á haugum,
reyndu þá gæskan að gæta að
gólfefni í eigin augum.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
17:29
.
Höfundur:
Borgar .
miðvikudagur, 23. mar 2005
mánudagur, 21. mar 2005
Smitaði, mærði, flyti, færi,
fjölgaði, smylli, kæmi.
Ritaði, lærði, skiti, skæri,
skuldaði, ylli, næmi.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
19:43
.
Höfundur:
Borgar .
Í lagamáli er það stundum þannig að málum er "hrundið í Hæstarétti". Hvernig virkar þetta orð?
Ég hrindi
Ég hrynti, hratt
Ég mun hrinda
Ég mundi hafa hrint, hrundið..?
Eru þetta tvö sagnorð sem eru eins í nafnhætti? Er þetta eitt orð sem er til í tveimur myndum (öxi/exi, hönd/hendi)? Hvað er málið?
Lesa áfram...
Sent klukkan:
18:13
.
Höfundur:
Borgar .
föstudagur, 18. mar 2005
Vinnutölvan mín gafst upp í dag og sama hvað ég reyni þá er ég fastur í Windows XP Repair Install lúppu(tm). Það er sama hvað ég geri, vélin reynir að halda áfram að "gera við kerfið" og endurræsa eftir svona 5 mínútur. Frrrrábært! Ef ég kynni bara að slökkva á þessu. Þá gæti ég kannski [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
13:55
.
Höfundur:
Borgar .
fimmtudagur, 17. mar 2005
Ég er búinn að vera að skrifa leiðbeiningar með þessu blessaða vefumsjónarkerfi mínu síðustu daga. Ég er búinn að skrifa 20 blaðsíður og sé enn ekki fyrir endann á þessu. Hver hefði trúað því að það væri svona mikið af virkni í þessu orðið?
Það auðveldar þó vissulega lífið að vera búinn að safna öllum upplýsingum [...]
Lesa áfram...
Sent klukkan:
14:17
.
Höfundur:
Borgar .
sunnudagur, 13. mar 2005
Meeting new people and warm friendly smiles
Interresting music in all sorts of styles
Wondering longingly what the day brings
These are a few of my favorite things
Aikido practice and things from Japan
When everything works out according to plan
The bright orange sun in Icelandic springs
These are a few of my favorite things
Crispy white footpaths recently snowed
Well layed-out functioning [...]
Read more...
Sent at:
19:15
.
Author:
Borgar .
þriðjudagur, 1. mar 2005
Vegir liggja til allra átta.
Enginn ræður för.
Hugur leitar hljóðra sátta
með háðugt bros á vör.
Og haturs óhreint arðsins mein
og reiði gjörðum kænum.
Þá verður sál þín veik og ein
og volæði í miskunbænum.
Lesa áfram...
Sent klukkan:
19:48
.
Höfundur:
Borgar .