föstudagur, 14. jan 2005

Hvað eru mörg raftæki á myndinni?

4 tölvur
2 skjáir
2 símar
1 USB diskur
1 mús
2 lyklaborð
1 prentari
1 vifta
1 hitari f. möppur
1 micro-vasaljós
1 par af hátölurum
1 handfrjáls búnaður f. síma
1 skjáskiptir
1 þráðlaus búnaður f. mús/lyklaborð
1 heyrnartól

Samtals: 21 stk.

Það má svo deila um það hvort heyrnartól séu raftæki en þau eru auðvitað ekki rafknúin. Óupptalin eru tvö batterí (sem ég tel ekki sem raftæki) og tvær mýs (sem eru í hvarfi).

Það óhugnarlegasta við þetta kann að vera að mér finnst þetta bara ekkert athugavert. :-)

2 ummææli við “Hvað eru mörg raftæki á myndinni?”

  1. Herbergið sem ég er í er þakið plasthlutum. Það er meira að segja málað með plastmálningu. Hefði þótt fríkað fyrir nokkrum áratugum. Öld gerviefnanna er u.þ.b. á gráafiðringsstiginu og við öll löngu vön þeim. Rafbúnaðurinn þinn er bara það sem koma skal - þú ert sörfandi á plús-hluta normalkúrfunnar.

    Þó veðurfarið sé líka allt sörfandi í plúsátt, rólega, er gott að vita að þú getur ornað þér við gömlu vinkonuna ELBA RADO, klædda í þröngan vínilgalla með áhugaverð piercings. Hitinn er að vísu fljótur að fara úr pappanum en þá grípur maður bara næstu og leggur hana kannski smástund á magann meðan maður vélritar hita í puttana. Svona meðan skerið þiðnar.

    Sittu beinn - lausnirnar við ónýtu baki eru ennþá á óþægilegum stað á milli járn- og lyfjaaldar.

    Krilli skrifaði 16.1.2005 8:11

  2. Ég skipti á milli þess að sitja beinn og, þegar þreytan er farin að segja til sín, stilla bakið á stólnum á "laust" og halla mér aftur. Stundum sit ég líka með krosslagðar lappir. Það er örugglega svoldið undarlegt að sjá einhvern sitja svoleiðis í skrifstofustól. :-)

    Borgar skrifaði 17.1.2005 10:44


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings