Bendill
Ég ætlaði að fara að ergja mig á því að Visual Basic (sem ég þarf stundum að nota í vinnunni) vill ekki leyfa mér að setja fingurbendilinn á hluti (takka o.s.frv.) en svo leysti ég það bara.
Það er tvennt um að velja í stöðunni.
Númer eitt er að sækja sérteiknað icon á hvern hlut og merkja hann með mousepointer = 99 (custom). Þetta hefur þá ókosti að sóa smá plássi (.6KB per hlut) og að á Win2k og XP er enginn skuggi á bendlinum.
Númer tvö er að nota eftirfarandi kerfisköll:
Public Declare Function SetCursor Lib "user32" (ByVal hCursor As Long) As Long
Public Declare Function LoadCursor Lib "user32" Alias "LoadCursorA" (ByVal hInstance As Long, ByVal lpCursorName As Long) As Long
..og setja svo upp mousemove event á hlutinn:
Private Sub Object1_MouseMove(Button As Integer, Shift As Integer, X As Single, Y As Single)
_ SetCursor LoadCursor(0, 32649&)
End Sub
Ég hef ekki hugmynd um hvernig þetta fer með minni/pláss en mig grunar að þetta sé skárra en hin aðferðin. Þetta er allavega "réttur" bendill með skugga og .enabled hefur áhrif á MouseMove þannig að það er ekki kallað í það þegar hlutir eru disabled. Þægilegt semsagt.
Ég á svo hérna líka PNG útgáfu af bendlinum. Bara svona ef ske kynni að ég þurfi að nota þetta aftur seinna. :-)

3 ummææli við “Bendill”
Það var eitthvað sem angraði mig - ég gat ekki sett puttann á það.
Krilli skrifaði 24.1.2005 20:02
ha ha ha :-/
Borgar skrifaði 24.1.2005 20:13
Þú ert steik, Borgar Þorsteinsson...
Biggi skrifaði 1.2.2005 22:52