Þar kom að því...
Diskurinn í laptopnum mínum dó í gærkvöldi. Þá geri ég ekkert nema horfa á vídeó næstu daga. Nema ég fríki út og geri við draslið á morgun? Það breytir því samt ekki að ég er líklega búinn að tapa öllum pósti og nýlegri vinnu. Þeas. því sem ég er ekki að geyma á servernum (sem er sem betur fer duglegur slatti).
Uppfært: Ég get þó allavega notað netið og svona á þægilegan hátt þökk sé Bjarna. Húrra fyrir Knoppix! Ég er búinn að brenna mér einn svona disk og sé því fram á að geta netast um helgina. Veiii‼ :-)
