sunnudagur, 19. des 2004

Kohina!

Sunnudagar eru kohinadagar á Lokastígnum. Ég vil vekja athygli ykkar á þessari snilldar netútvarpsstöð. Þeir spila engöngu upptökur af tölvuleikja- og demótónlist frá gullaldarárunum (1980 - 1990). Fyrir okkur sem ólumst upp fyrir framan tölvuskjá á þessum tíma og erum reyna að þróa með okkur kynslóðarvitund… þá er þetta bara nauðsynlegt.

Af hverju er ekki er ekki til íslenskt orð yfir demo? Í fljótu bragði dettur mér ekkert í hug.

5 ummææli við “Kohina!”

  1. Hvað með "sýni"?

    Biggi skrifaði 19.12.2004 12:27

  2. Linkarnir þarna eru ekki alveg extra.

    Krilli skrifaði 19.12.2004 13:46

  3. Minnir ég hafi einhverntíman heyrt einhvern kalla svoleiðis "vinnueintak" en það er asnalegt orð :P

    Heiða skrifaði 20.12.2004 5:11

  4. Sko, ensk-íslenska orðabókin notar orðið "demó" fullum fetum...!

    Biggi skrifaði 21.12.2004 14:46

  5. Ég var einmitt að velta þessu fyrir mér um daginn. Án þess að komast að endanlegri niðurstöðu, þá datt mér samt í hug að "dæmi" væri sniðug þýðing.

    Már skrifaði 29.1.2005 22:42


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings