fimmtudagur, 4. nóv 2004

Lýsingarháttur þáframtíðar

Framhald í seríunni "ég kenni mér til máls". Í þessum kafla ætla ég að taka í sundur þessa fegurð sem Ingó sendi í dag:

You May Have Already Won an NVIDIA GeForce 6800 GT!

Það tók mig heldur betur tíma að finna út úr því hvað er að gerast hérna. Þ.e.a.s. hvernig ég gæti útskýrt það. Það er auðvitað ekkert mál að benda á það hvaða orð er vitlaust og raða þeim rétt upp ("You may already have won…"). Máltilfinning okkar gerir það fyrir okkur með ótrúlega flóknu tauganeti sem við erum búin að vera mörg ár að fínpússa. En hvað er að gerast þarna?

Á íslensku viljum við kalla þetta lýsingarhátt þátíðar (þ.e.a.s. aðalsögnina, "Won"). Eða hvað? Neibb… Sögnin hafa (þarna: "Have") er hjálparsögn sem er notuð til þess að koma þessu yfir í ennþá flottari tíð; þáframtíð. Á ensku kallast hún future perfect. Semsagt; lýsingarháttur þáframtíðar.

Svo hvað er þessi málníðingur að gera vitlaust? Jú, hann er að troða orði á milli hjálparsagnar og sagnarinnar sem hún stendur með. Þetta er flott dót.

Það er varla að maður nenni að minnast á hástafanotkunina. Viðkomandi fær þó plús fyrir að nota bara eitt upphrópunarmerki. Það er ekki á hverjum degi sem dauðlegum manni tekst að skrifa setningu með aðeins einu upphrópunarmerki. ;-)


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings