miðvikudagur, 3. nóv 2004

Kosningarnar í Bandaríkjunum

Ég held að það sé nú öllum ljóst að George "dabbelljav" Bush hefur náð að halda Hvíta húsinu í fjögur ár í viðbót. Ekki undarlegt í ljósi þess að meirihluti kjósenda í BNA er ekkert að fylgjast með heimsmálunum og er því alls ómeðvitaður um vaxandi óhug evrópu- og asíubúa í garð utanríkisstefnu Bandaríkanna. Þeir kjósa mest eftir "mórölskum gildum".

En svona er þetta nú, vonarglætan um að Kerry mundi kannski slaka á spennunni sem ríkir í heimsmálunum er svo gott sem úti. Við munum áfram sjá hörmungar í Palestínu, og án efa munu Bandaríkamenn halda áfram að valda fólki lýðræði í miðausturlöndum. Mér finnst svoldið skemmtileg þversögnin í því að þvinga lýðræði uppá þjóð. "Takið eigin ákvarðanir eða við drepum ykkur!"

Já, þegar ekki er von á öðru en áframhaldandi þjáningum og drápum á þúsundum saklausra er gott að vita að maður hefur þó alltaf kímnigáfuna í lagi.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar