fimmtudagur, 23. sep 2004

UIUiuiuiuiu... Blip blip!

image

Ingó tókst að koma spilakassanum í nothæft ástand í gærkvöldi og við gátum spilað Pac-Man í spilakassa í gærkvöldi! Ég get engan veginn tjáð almennilega hversu hamingjusamur ég var, og er, að sjá kassann virka eins og honum var meint að gera.

"Viðgerðin" var samt ekki fullnaðar. Kassinn var ekki eðlilegur í morgun þegar ég kveikti á honum. Við komumst þó að því hvað vandamálið er og að það er smávægilegt. Svo er bara að verka gripinn þannig að hann sé fúnksjónal og til taks í hvert sinn sem mér þóknast að kveikja á honum.

Svo er líka spurning hvort það er ekki hægt að stilla skjámyndina eitthvað aðeins meira til, en ég var búinn að fokka henni fram og tilbaka í fyrstu tilraunum mínum til þess að fá græjuna í gang. Hún er undarlega snúin og sérkennileg í augnablikinu en ég hef lúmskan grun um hvernig ég get lagað það.

Má vera að ég verði bara inni um helgina :-)


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar