föstudagur, 24. sep 2004

Klám í báðar áttir

Ég fór að hugsa um sléttubönd í dag. Það er teoretískt ekkert svo erfitt að setja þau saman. Formúlan er þessi, þar sem hverjir fjórir bókstafir standa fyrir braglið:

xxR1 xxxx S1xx S1R2
S1xx xxxx xxR3
xxR1 xxxx S2xx S2R2
S2xx xxxx xxR3

Maður þarf einnig að passa sig á því að nota heil orð. Það gerir smíðina mun auðveldari. Helst af öllu að nota orð fyrir braglið. Það er reyndar eitthvað sem maður á að tremja sér hvort eð er; það gerir málið eðlilegra og vísuna fallegri fyrir vikið.

Ég byrjaði á pælingunni að skrifa eitthvað um mök/samskipti kynjanna og hafa hana þannig að í átökunum yrðu kynin ýmist undir eða yfir eftir því hvort vísan væri lesin afturábak eða áfram. Svo endaði ég með eitthvað rugl um typpi. Erðanú. Ég vil taka það skýrt fram að þetta er ekki kveðið um eiginn narsassisma. ;-)

Undir hangir karli kjöt,
kraftalega gróið.
Stundir flestar girnist göt,
gungulega hróið.

Merkingin helst fullkomlega aftur á bak:

Hróið gungulega göt,
girnist flestar stundir.
Gróið kraftalega kjöt,
karli hangir undir.

Rusl, en ég er ekki búinn að gefast upp á forminu svo enn er von.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar