mánudagur, 30. ágú 2004

Vídeókvöld á Lokastígnum

Eftir mikið þjark á leigunni ákváðu þáttakendur að gera þetta með stæl og taka tvær vondar myndir. Kom í ljós að þær voru ekki það sem þær sýndust í fyrstu:

Killer Tattoo er myndin sem við héldum að væri góð og vorum allir tilbúnir að veðja á - einkum vegna töffaralegs kóvers og súrri innihaldslýsingu. Hún sagðist vera epísk framtíðarglæpamynd en við vorum vissir um að hún væri algjör steypa. Það reyndist rétt að hún var alveg grilluð, en því miður var hún að taka sjálfa sig of alvarlega á köflum. Hún átti þó nokkra spretti þótt hún væri léleg, sérstaklega var gaman af textanum sem við neyddumst til þess að lesa sökum vanþekkingu okkar á tælenskri tungu:

Other people body.
Fuck it! It's not your die.

Seinni myndin var, til allrar hamingju, gargandi snilld sem enginn má missa af; From Bejing with love eftir snillinginn Stephen Chow sem nýlega hefur gert meistaraverkið Shaolin Soccer. Við vorum farnir að veina úr hlátri strax í byrjun og var ekkert lát á fyrr en myndin var búin. Ljóst er að reynt verður að komast í fleiri myndir eftir Chow á næstunni. :-)

2 ummææli við “Vídeókvöld á Lokastígnum”

  1. Þessar skilst mér að séu góðar / fyndnar: King of Comedy, God of Cookery, Forbidden City Cop, Tricky Brains

    Krilli skrifaði 30.8.2004 20:52

  2. This is a book!

    Ghost skrifaði 5.9.2004 16:42


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings