þriðjudagur, 3. ágú 2004

Skiltið

Ég stoppaði við Jökulsárlón á leiðinni austur um helgina. Ekkert frásöguvert í sjálfu sér enda hafa mun merkilegri menn en ég, þar meðtalinn frelsarinn sjálfur, stoppað þar.

Í leit minni að aðalatriði svæðisins, klósettaðstöðunni, rakst ég á skilti sem lýsir sögu, staðarháttum, og [[HTTP://www.latrabjarg.is/voegel/islensk/Skua.htm
|meinvættum]] staðarins.

Ég var sleginn af því hversu vel skrifað þetta skilti var. Smekklegt orðalag og gott málfar er orðið svo sjaldgæft í dag að þegar ég rekst á það er mér bókstaflega brugðið. Ég stóð bara þarna í kuldanum og hrópaði skiltinu lof.

Ef þú þekkir höfund skiltisins, vinsamlegast kauptu bjórkollu handa honum, ég lofa þér að hann á það ríflega skilið.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar