Austurland um Verslunarmannahelgi
Vinnan er ákveðinn léttir eftir að hafa eytt allri orku og gríðarlegum peningum í ferðalag austur á Höfn í Hornafirði. Við dvöldum í góðu yfirlæti í starfsmannaálmu Fosshótels undir yfirumsjón kokksins.
Ég hafði aldrei komið jafn austarlega á landið áður svo ég viti til en ég útiloka svosem ekki að ég hafi verið þarna sem barn.
Mér finnst austurland lúmskt spennandi og með einni undantekningu hefur mér fundist það fólk sem ég þekki þaðan frábært. Ég væri alveg til í að ferðast meira þarna um og skoða helstu staði og það allt… En vá, það verður að gera eitthvað í þessari rigningu fyrst!
