fimmtudagur, 3. jún 2004

Úrfellingar (ekki klám)

Ég er frekar anal-retentive þegar kemur að týpógrafíu en svei mér ef mér finnst bara ekki 1000x skárra að sjá tommulappir en einhverjar rugl reddingar. The road to hell og allt það…

  • „best“
  • "fullkomlega ásættanlegt"
  • sorglegt"
  • vonlaust''
  • glæpsamlegt athæfi´´

Þetta er samt engan vegin jafn fáránlega ömurlegt og þegar fólk gerir ekki greinamun á backtick og úrfellingarkommu og skrifar don´t í staðinn fyrir don't. Þá fæ ég samstundis blóðnasir.

14 ummææli við “Úrfellingar (ekki klám)”

  1. >skrifar don´t í staðinn fyrir don't. Þá fæ ég samstundis blóðnasir

    Með þessum fontum er munurinn nákvæmlega 1 pixel.... could have fooled me. Ég held að þetta tiltekna anal-retentiveness hafi meira að gera með að þú ert forritari og þess vegna mjög meðvitaður um rétt syntax, hey en hvað er ég að reyna að afsaka hvað þú ert geðveikur ;-)

    Ingo skrifaði 3.6.2004 14:36

  2. Já, í þessu letri. En textinn og letrið eru ekki sami hluturinn.

    Ef ske kynni að lesendur mínir geri sér grein fyrir því þá hefur hver stafur í stafrófinu okkar sína sérstöku merkingu. Það fara allir að skæla ef maður víxlar Y og I svo hví má víxla ' og ´? Ég geri þessa undantekningu á íslenskum gæsalöppunum af því að þær eru ekki á íslensku lyklaborði og það er í flestum tilvikum vesen að nálgast þær.

    Máske er ég skemmdur vegna þess að ég er búinn að vera að forrita í langan tíma. Ég held samt að þetta sé vegna þess að ég hef brennandi áhuga á týpógrafíu og vann sem letrari í nokkur ár. En svona er þetta nú, ég er og verð klikk þegar kemur að þessum hlutum.

    Borgar skrifaði 3.6.2004 15:13

  3. Ég hef dáldið pælt í þessu með gæsalappirnar, og gallinn við gæsalappir almennt er að þær eru algjörlega óstaðlaðar milli tungumála.. ...sem er náttla bara rugl sem getur ekki varað lengi í viðbót.

    Því hef ég tekið þann pól í hæðina að nota bara "tommu" gæsalappir og 'úrfellingarkommur'. Heimsbyggðin hlýtur að ná áttum á endanum, og þá veðja ég á að þessi tákn verði fyrir valinu. :-)

    P.S. ég held að ` sé 'backtick' en ´ heiti 'grave' eða eitthvað svoleiðis ... en ég er alls ekki viss.

    Már skrifaði 3.6.2004 15:43

  4. Ég er nefnilega nokkuð sammála þessu. Come the revolution verða íslensku gæsalappirnar fyrstar fyrir aftökusveitina. Ég var búinn að gefast upp á þessu fyrir löngu síðan og taka upp sömu stefnu.

    Þetta backtick, grave er tómt rugl í mér... ` er kallað grave (accent) og ´ er kallað acute (accent). Backtick er venjulega ` en ég kalla samt bæði ` og ´ backtick þrátt fyrir að ég ætti að kalla þetta tick og backtick - sbr. slash og backslash. Tick er samt ekki raunverulegt týpógrapfískt heiti á þessum stöfum heldur eru þeir eitthvað svona frík keis eins og ~ (tilde) eða # (number) sem er eru bara kölluð því sem fólki dettur í hug.

    Athyglisvert væri að vita hvort að einhver veit hvað ` og ´ heita á íslensku. Er það þá bara vísindavefurinn? Eða ætli maður sé fljótari að hringja bara niður í málstöð?

    Borgar skrifaði 3.6.2004 16:06

  5. Argh... 'grave' er auddað það sama og 'backtick'. Heilinn á mér er steiktur... Þetta eru allt bara helvítis kommur - ýmist uppi eða niðri, hægri eða vinstri snú. Blah. :-)

    Már skrifaði 3.6.2004 16:23

  6. Fyndið samt að þegar raunverulega kemur að þessu er mér nógu sama sjálfum til að rugla þessu öllu. Niðurstaðan hlýtur að vera að þetta er fegurðarskynið sem er að valda því að mér finnst þetta svona hræðilegt. Það er allavega það sem ég ætla að halda fram héðan-í-frá. ,,ljótt er ljótt!'' :-Þ

    Borgar skrifaði 3.6.2004 18:57

  7. A.m.k. heitir ´ stafbroddur. Þetta tákn á aðeins að nota yfir bókstafi. Það er talsvert meira en einn pixel sem eyðilegst þegar "don´t" er skrifað -- orðið dettur í sundur því bilið milli enns og tés verður of mikið. Í því felst ljótleikinn. Glöggir taka eftir bandstrikanotkun minni hér -- tveir mínusar eru ágætis staðgengill fyrir alvöru bandstrik.

    Krilli skrifaði 4.6.2004 1:16

  8. Jájájá, það er líka með ólíkindum hvimleitt að sjá tvo mínusa inni í miðri setningu. Hví gerir þú augum mínum þetta?

    Ný færsla um málið: HTTP://borgar.undraland.com/s/2004/06/04/03.14.35/

    Borgar skrifaði 4.6.2004 3:26

  9. Ég vil reyndar bæta einu trixi í pottinn:

    (font size="1")(sub)99(/sub)(/font)Þetta fer vel á síðu!(font size="1")(sup)66(/sup)(/font)

    Krilli skrifaði 19.4.2006 13:54

  10. Fyndið að nýja kerfið skuli svo mangla tommulappirnar mínar.

    Krilli skrifaði 19.4.2006 13:54

  11. Svo samskiptum mínum við kóðann verði áfram haldið í þessum afskekkta þræði, þá bendi ég á að á milli tvöfaldra mínusa skemmilegst strikast allt út.

    Krilli skrifaði 19.4.2006 21:46

  12. Hah nei, þeir fara ekki inn. Hafi þeir farið áður inn, strika þeir texta út. Þetta er alveg nýtt 99paradigm66!

    Krilli skrifaði 19.4.2006 21:47

  13. Ég vil ekki að þú haldir að ég sé eitthvað vanþakklátur að fá svona ábendingar. En þú getur alveg slakað á í villuleitinni.

    Ég er meðvitaður um þetta, og reyndar margt annað sem er að gerast hér, og ég veit hvað er að valda þessu. Ég tek á þessum málum eftir eigin hentisemi.

    Borgar skrifaði 20.4.2006 23:26

  14. Getur verið að þetta sé heldur snubbótt svar og laust við "takk", miðað við svar sem vill ekki að maður finni fyrir vanþakklæti ... ?

    En það ætti að vera auðvelt að hætta að láta þig vita af villunum - hvað sem herranum og hentisemi hans líkar best.

    Krilli skrifaði 21.4.2006 13:09


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar