miðvikudagur, 30. jún 2004

Rvk 101

Fyrir þá sem vilja vita það er ég fluttur í miðbæinn frá og með gærdeginum. Þið eruð velkomin í heimsókn. Heitt á könnunni.

7 ummææli við “Rvk 101”

  1. Hvar í miðbænum?
    Kv. Leyniaðdáandinn

    36 Spítur skrifaði 2.7.2004 10:17

  2. Ég er nú alveg viljandi að tilgreina það ekki svo mitt hyski hringi á undan sér. Svo vil ég ekkert að einhverjir stalkerar séu að gegnumlýsa íbúðina mína á meðan ég sef. Geturðu ekki bara hringt á undan þér eins og aðrir? :-9

    Borgar skrifaði 2.7.2004 11:48

  3. Nei ég veit ekki símann hjá þér, en er ekki viss spenna að hafa nokkra stalkers? Alltaf gaman að vera eftirsóttur :D

    36 Spítur skrifaði 2.7.2004 13:13

  4. Jú jú, stalkerar eru fínir. Það væri bara hentugra fyrir alla ef þeir hringdu á undan sér. Allir almennilegir stalkerar ættu alveg að geta reddað sér símanúmerinu mínu. :-)

    Borgar skrifaði 2.7.2004 14:07

  5. og hvað? á ég bara að vita af kaffinu læstu inni hjá þér? hvað meinarðu? þú ert ekkert heima!

    punkky skrifaði 6.7.2004 15:03

  6. Hey dude! Þú ert súper cool! En þú þurftir náttúrulega ekki að flytja í 101 tila að fatta það og varla þurftir þú á mér að halda til að segja þér það. Ég hlakka alveg heiftarlega til að sjá staðinn. Ég sé þetta fyrir mér núna, það verður svona fimm síðna grein í hús og hybíli (híbýli) um innanhús arkítektúr. Eina íbúðin í borginni sem er innréttuð eins og tölvuherbergið hjá múttu!

    Það verður augljóslega alltaf hlytt hjá þér og dregið fyrir ef ekki vegna stalkera þá vegna sólarinnar. Það truflar einbeitinguna að vera alltaf að fylgjast með dögunum líða hjá.

    Þinn að eilífu Gaur!

    Agust skrifaði 8.7.2004 7:17

  7. Já, já, já...! fluttur í könnuna... heitt á miðbænum... Skrifaðu nú eitthvað nýtt maaaaar. Hnýsni minni og gægishneigð er engan veginn svalað með svo stopulu bloggi sem raun ber vitni!Ég vil fá að sjá myndir af salerninu þínu og innviði svefnherbergisskúffa (eða er það -skúffna...?)! Yabbo! Fa fa fa! Zing ha!

    Bassastingur skrifaði 18.7.2004 8:58


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings