Borgar bestur satt!
Ég er búinn að drekka of mikið kaffi og því vil ég að því tilefni koma á framfæri eftirfarandi yfirlýsingu:
Svo það sé alveg á hreinu, það sé enginn misskilningur og allir séu rétt upplýstir. Vil ég taka það fram að ég, Borgar Þorsteinsson, er bestur!
Enginn annar en ég getur verið bestur af því að ég er bestur og ég er lang lang langbestur af því að ég er svo algjörlega fullkomlega frábær.
Satt!
Vildi bara koma í veg fyrir að þið væruð eitthvað að efast. Verið ekkert að hafa fyrir því að reyna að mótmæla þessu, ákafi ykkar mun einungis sýna hversu mikið þið öfundið mig af embættinu. Ef þið viljið hins vegar sýna mér, (besta) drottnara ykkar, (algjöra) lotningu megið þið gera það í svarkerfinu.
Mig langar mjög gjarnan að koma upp svona cult of personality hérna á klakanum og ég var að hugsa hvort að einhver vildi ekki taka að sér að verða áróðursstjóri hjá mér? Þá vantar mig einnig yfirmann leyniþjónustunnar og hernaðarmálaráðherra. Í boði eru góð laun og svo verða vitaskuld reistar styttur af öllum embættismönnum á áberandi stöðum í borginni.

Ein ummæli við “Borgar bestur satt!”
Mig langar að vera hernaðarmálaráðherra!
Bre skrifaði 7.6.2004 13:49