sunnudagur, 2. maí 2004

Viska úr plötudómi

Mig langar að deila með ykkur svolitlu sem ég fann fyrir hreina tilviljun:

But if compilations like this one reveal anything, its that people who don't care all that much about music are actually much more open-minded and flexible about it, and may be more responsive to musical innovations when they come. After all these are the people who aren't thrown by Devo and the Doobie Brothers coexisting on the same disc; these are people who can get into Yes and the Stray Cats equally, on the same level of utter detachment from where these bands are coming from, where they've been, and what their posturing consists of.

Það er ekki oft sem plötudómar færa mér svona visku. Yfir höfuð hafa mér fundist plötudómar annað hvort gagnslaust röfl sjálfskipaðra poppfræðinga um eigið ágæti frekar en viðfangsefnið sjálft og/eða fyrirframgreidd froða útgáfufyrirtækja í markaðslegum tilgangi.*

Ég er allavega ákaflega sammála þessari tilvitnun og hún getur átt við um margt fleira en tónlist. Hugsið málið.

* Eitthvað á ég eftir að heyra það því að hátt hlutfall notenda undralands hafa fengist við plötudóma. :-)

2 ummææli við “Viska úr plötudómi”

  1. Þetta er bæði rétt og fallegt. Nema ég held að það að vera ekki heitur tónlistarunnandi sé ekki endilega skilyrði fyrir því að vera opinn fyrir nýjungum. Þ.e., ég held það séu til jafnt hobbítónlistarneytendur sem ekkert vilja á sinn disk nema Spears og Minogue, einnig lifaðir "professional" tónfíklar með tíubanda íkvalæser og meirapróf í reverbi sem kætast við hverja nýja samsuðu köflótts og röndótts. Þ.m.t. ég.

    Kristleifur skrifaði 3.5.2004 14:14

  2. Ég held það sé nokkuð til í þessu en þá e.t.v. helst á þeim forsendum að ignorans sé bliss. Þ.e.a.s. ef maður veit ekki að manni á að líða illa yfir einhverri kombínasjón þá angri það strax mun minna. Í stíl við það myndi mér t.d. án efa líða mun verr yfir því hvað það er vont bragð af ananassafanum sem ég er að drekka ef ég vissi hvenær hann rynni út.

    Unnur skrifaði 3.5.2004 15:43


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar