þriðjudagur, 25. maí 2004

Kill Bill og Klósethurðin

Ég hef verið að velta þessu fyrir mér:

Í Kill Bill pt. 2 er atriði sem gerist inni á hótelherbergi. Launmorðinginn Karen Kim er mætt á svæðið með haglabyssuna sína til þess að sálga elsku Beatrix okkar. Í látunum stekkur Brúðurin bakvið rúm (eins og það sé eitthvað skjól frá haglabyssu á 4 metra færi). Ég sá ekki betur en að í snöggri hreyfingarflækjunni færi hún annan fótinn á sér upp og loki klósetthurðinni fyrir aftan sig áður en hún stekkur undir rúmið.

Svo hvers vegna lokar hún hurðinni? Er hún að skapa hreyfingu til þess að villa um fyrir skotmanni og kaupa sér tíma? Eða, er hún einfaldlega að loka hurðinni til þess að minnka ljósið í herberginu (það er rökkur alstaðar nema inni á baði)? Er endilega betra að hafa myrkur frekar en skarpari skugga?

Sá einhver þetta nógu vel og er búinn að drepa nógu marga til þess að vita hvað er í gangi?

Jæh, ætli ég þurfi ekki bara að sjá þetta einu sinni enn…


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings