Í besta falli...
Ég fór með laptopinn minn í viðgerð áðan. Gaurinn hlustaði á listann minn af hlutum sem voru að vélinni (ónýtir portar aftaná og skjárinn er dauður) og sagði svo:
Í besta falli verður þetta 10.000 króna viðgerð. Ég mun skrifa á þig 1 vinnutíma hvernig sem fer og ofan á það bætast varahlutir. Ef rásir á móðurborðinu eru farnar er vélin sama og ónýt. Ef það þarf að skipta um rásir í skjánum er það sennilega annar vinnutími plús 8.000 kall í parta.
Ég mundi semsagt enda með vél sem er alvarlega gölluð og borga 10.000 plús plús fyrir. Hún ofhitnar, það er ekkert batterí í henni, hún er hægvirk, hávaðinn í viftunni drekkir öllum öðrum hljóðum í nánasta umhverfi… Ég sagði því bara:
Ég ætla að fá nýja vél takk, er ekki hægt að nota parta úr þessari í hana?
Jámm… Kannski ekki gáfulegasta ákvörðun sem ég hef tekið á æfi minni en hey, ég er svosem ekkert að réttlæta þetta… mig langaði!

4 ummææli við “Í besta falli...”
Mér finsnt þetta reyndar gáfuleg ákvörðun. :-)
Bjarni Rúnar Einarsson skrifaði 27.5.2004 14:18
Þetta var lagið! Ég get séð að þú ert sannur vinur á því hvernig þú ert meðvirkur. ;-)
Borgar skrifaði 27.5.2004 14:27
meðvirkni er ekki sannur vinskapur, heldur hvernig þú dílar MEÐ vinum gegn vandamálum
Anonymous skrifaði 27.5.2004 23:42
Sammála BRE, þetta er vinnutæki sem þú notar mjög mikið á hverjum degi og fáránlegt að sætta sig við einhvern gallagrip sem stefnir gögnum, tíma og taugum í hættu. Af hverju ætti þessi ákvörðun að vera ógáfuleg?! Ef þetta stútar þér þ.e.a.s. ekki fjárhagslega...
Ingo skrifaði 28.5.2004 18:58