föstudagur, 30. apr 2004

Visions of Japan

Um daginn sótti ég þetta og þótt ótrúlegt sé hef ég í alvöru verið að spila þetta. Við erum hérna að tala um tvo og hálfan tíma af hávaða úr spilakössum. Þessu dæli ég svo í eyrun á mér. Er svona hegðun eðlileg?

Hljómsveitin Japan á líka stóran þátt í að dælda á mér hljóðhimnurnar, bæði hversdags og um helgar. Mér finnst þeir alveg hrikalega svalir, næstum því nógu svalir til að ég fái mér 80's hár. Þeir eru eðlilegt framhald af dálæti mínu á Duran Duran, Love & Rockets, Yellow Magic Orchestra og Ryuichi Sakamoto. Fyrir ykkur sem finnst nýrómantík eins kúl og mér - tja - ég mundi segja ykkur að kíkja á þá en ég hef ekki fundið þá í plötubúðum hérlendis né við leit á netinu.

Hver er tenging mín á milli þessara tveggja hluta? Hún er Computer game [Theme from Circus] með Yellow Magic Orchestra. Það hefur mér aldrei verið jafn ljóst og nú að þeir strákar vissu svo fullkomlega hvað þeir voru að gera.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar