Meira um Pac-Man kassann
Ég er búinn að vera að hugleiða þetta allt saman og reyna að taka ákvarðanir um hver framtíð kassans sé og held að ég sé nokkurn veginn búinn að komast að niðurstöðu.
Þótt það sé mjög vafasamt athæfi ætla ég á endanum að breyta kassanum í MAME box. Það er vafasamt vegna þess að kassinn er forngripur og dýr (flettið ebay og sjáið þá fara á 50 til 100 þúsund kall). Hins vegar er skjárinn sennilega á sínu seinasta (ef ekki dauður), kassinn nánast verðlaus á Íslandi og orðinn pínu sjúskaður (þrátt fyrir að vera í ágætu standi þannig). Ég tími ekki 20.000 kalli + aðfluttningsgjöldum í nýjan skjá osfrv..
Ég fann síðu þar sem einhver gaur hefur breytt Pac-Man yfir í MAME kassa. Sjá.

Fyrsta skrefið verður að athuga hvort að ég get fengið mónitorinn í gang. Það ætti ekki að vera svo mikið vandamál að finna út úr því. Ég er er búinn að finna viðgerðabæklinga fyrir u.þ.b. alla skjái sem eru í þessum kössum. Nú þarf ég bara að finna út úr því hvað þarf að lóða í klessu.
Næst á dagskrá verður svo að panta sér 2x stýripinna, 2x6+6 takka (1PL, 2PL, esc…) og I-PAC pc-viðmót. Setja það saman og fá það til að virka með MAME. Ég ætla mér ekki að fara að rífa kassann í sundur fyrr en ég er kominn með allt sem þarf til að setja hann saman aftur.
Þriðja skrefið verður svo að setja upp sérstaka vél sem gerir ekkert nema keyra MAME og sjá allt nýja innihald kassans virka saman. Þá mun ég rífa allt innan úr kassanum, þrífa hann, laga botninn og setja á hann gúmmílappir svo að hann geti staðið hvar sem er (t.d. á parketi). Að lokum set ég svo nýja innihaldið í kassann og bæng, Róbert er föðurbróðir þinn.
Nokkrir hlutir sem ég hef verið að velta fyrir mér:
Ég ætla að hafa skjáinn lausan í ef ég get því að þannig verður auðveldara að flytja hann (sem ég kem pottþétt til með að þurfa að gera). Móðurborð drif og þessháttar verður skrúfað fast eins og í venjulegum kössum. Ég þarf líklega að skipta um hátalara (en ég vona að ég geti notað mono draslið sem er í). Gaman væri að geta sett volume stillingu á kassann (td, falið ofan á) svo að ég þurfi ekki alltaf að hafa hann í botni; mögulega gæti það orðið þreytt. ;-)
Mig langar að keyra hann á Linux, því að það er auðveldara að laga MAME kóðann til eftir þörfum þannig; boxið verður líka meira dedicated þannig. Ég lostna td. við að vera með gluggakerfi. Ég er búinn að vera að velta fyrir mér möguleikunum á að setja eth tengi á kassann svo að ég geti bara SSH-að mig inná hann til þess að setja inn ný ROM eða laga til stillingar osfrv.
Þetta eru þó svona ákvarðanir sem geta beðið aðeins…

4 ummææli við “Meira um Pac-Man kassann”
Æði...ef ég vissi hvað MAME væri þ.e.a.s. :-Þ
Ingorant Ingo skrifaði 23.4.2004 16:26
Ef þú tékkar á síðunni sem ég linkaði á í fyrra svari, gæti verið að hann listi nákvæmlega bilunina sem þú ert að díla við. Þá þarftu mögulega bara að skipta um ein/tvo íhluti. Venjulegir viðgerðabæklingar geta verið soldið torf fyrir leikmenn. Damn ég vildi ég væri þarna! Ég er sef varla þessa dagana, mig langar svo að fikta í þessu með þér!
Ingo elektrotekniker skrifaði 23.4.2004 16:33
MAME er stytting á "Multiple Arcade Machine Emulator". MAME er sumsé spilakassaleikjahermir. Hann les minnið úr upprunalegu ROM kubbunum úr kössunum og gerir sitt besta til að keyra leikina nákvæmlega eins og þeir eiga að vera. Windows útgáfan sem ég er með segist spila 4319 leiki (en eitthvað af því eru klónar eða mismundandi útgáfur af sama leiknum).
Þannig að ef ég set upp MAME kassa þá enda ég með spilakassa sem ég get spilað ALLA gömlu leikina á. Ekki bara Pac-Man heldur erum við líka að tala um Space Invaders, Frogger, Galaxian, Bombjack, Double Dragon, Asteroids, Centipede, Marble Madness... Svona til að nefna eitthvað. :-D
Svo er auðvitað ekkert mál að keyra fleiri herma á þessu, td. ST hermi og spila Wings of Death, IK+ og Giana Sisters. Einhver gaur skrifaði MP3 Jukebox forrit sem er stýrt með joystick; það er mjög partívænt! :-)
Linkurin þinn tekur engöngu á viðgerðum á borðinu sjálfu en það er ekkert að því í kassanum mínum. Borðið er svo best sem ég veit í topp standi. Það er skjárinn sem er að deyja. Ég þarf að lesa teikningarnar (eða fá einhvern til þess) og komast að því hvernig gert er við "horizontal circuit defect".
Já, og ef þú heldur að ÞÚ sért heitur fyrir því að fikta í þessu apparati hvernig heldurðu þá að mér sé ástatt að geta ekki einu sinni kúrt með kassanum á nótunni? ;-)
Borgar sjálfur skrifaði 23.4.2004 18:02
Ef þu sendir mér teikningar, skal kreista upp mína ryðguðu kunnáttu og reyna að troubleshoota gegnum netið, en ekki fyrr en eftir næstu helgi. Maður reyndar sennilega að mæla bunch til að komast að því hvað er að og svoleiðis er dáldið heft gegnum MSN :-Þ
Ingo skrifaði 23.4.2004 20:24