Kwaggawaggawagga....

Frá og með kvöldinu er ég er stoltur eigandi upprunalegs Pac-Man spilakassa! Já, þið lásuð þetta rétt. Ég er kúlli en þið fáið mögulega skilið með 100% nýtingu litlu vanþróuðu jarðheilanna ykkar.1
Fór og sótti græjuna og flutti hana heim til Daniels þar sem ég meika ekki að vera að færa þetta monster upp í Diggaz Bay þegar ég er hvort eð er að fara að flytja niður í bæ fljótlega.
Kassinn er í fínu ástandi þó svo að það mætti alveg þrífa hann að innan. Upprunalegt paintjob, perurnar virka og leikurinn virðist keyra fullkomlega. Það er samt dauður þéttir eða álíka í mónitornum því að skjámyndin er ein lóðrétt lína. :-(
Ég gerði mitt besta til að reyna að fikta í hold stillingum en án árangurs. Þessir skjáir voru svo sem ekki gerðir til að endast. Ég er eiginlega frekar efins um að þetta sé upprunalegur skjár sem er í kassanum það væri líklega kraftaverk ef hann hefði enst svona lengi.
Svo möguleikarnir eru þessir:
- Laga skjáinn (pottþétt það sem ég mun athuga fyrst).
- Redda nýjum skjá (>20.000 + tollur & kostnaður við að flytja hann frá BNA).
- Rífa innihaldið úr kassanum og breyta honum í MAME box (freistandi en guðlast).
Hvaða leið sem farin verður er alltaf víst að þetta endar með því að Pac-Man verður spilaður úr þessum kassa í næstu framtíð. :-)
11 Bjór fyrir þann sem fyrstur skrifar í kommentakerfið hvaðan þessi tilvitnun er.

6 ummææli við “Kwaggawaggawagga....”
Eg drep thig af ofund... nema thu deyfir mig med afengi!
Thad vanntar samt inn i soguna hvad thu thurftir ad forna til ad eignast hann (sjalfsvirdingu, salinni, peningum, kynferdis prinsipum) vid lesendur viljum alla djusi deteils.
Mig langar nebbla lika i kassa... ekki sama og thu heldur thennann racer leik thar sem haeg var ad vera fjorir og madur sa brautina ad ofann. Eg er til i ad forna morgu fyrir hann lika...
PS: Eg aetla verda mame kassi thegar eg verd stor.
Agust skrifaði 21.4.2004 11:41
Kannski ég lagi pinball kassann minn, þá getum við allir hist einu sinni í mánuði með ungana okkar ...
Krilli skrifaði 21.4.2004 12:32
Ég fékk hann fríkeypis! Ég þurfti svo að borga sendibílstjóra 2500 kall fyrir að keyra hann niður á Ingólfsstræti fyrir mig. Svo svitnaði ég aðeins þegar við vorum að flytja hann upp og niður tröppurnar og það er u.þ.b. það sem ég þurfti að láta fyrir hann. :-)
Borgar skrifaði 21.4.2004 12:39
Ertu ekki að meina Super Sprint?
Borgar skrifaði 21.4.2004 12:42
Kallinn minn!! Ef þú meikar að bíða þangað til ég kem á klakann, þá skal ég lofa þér því að sofa ekki dúr fyrr en kassinn virkar! Við getum tekið hann í gegn saman, og gert hann eins og nýjan. I'm in, boy am I in!
Ingo skrifaði 22.4.2004 15:00
HTTP://users.erols.com/mowerman/pacfile.htm
Leimmérleimmér plíís!! ;-)
Ingo skrifaði 22.4.2004 15:04