þriðjudagur, 27. apr 2004

Fjúkk itt!

Undraland.com er að komast upp aftur. Ég var alvarlega farinn að örvænta.

Ástæða þess að lénið fór niður var að ég "dömmaði á mig" eins og sagt er. Nefnilega var kominn tími á að endurskrá lénið en ég var algjörlega meðvitundarlaus um það. Venjulega þarf ég ekki að muna þetta því að ég fæ tilkynningar í tölvupósti þess efnis að tími sé kominn á endurskráningu. Nema hvað, ég er hættur að nota pósthólfið sem tilkynningarnar fóru í og hafði gleymt að laga skráninguna í lénaþjónustunni.

Um leið og lénið datt út sendi ég því fax til lénamiðlarans míns og fékk þessu reddað í snarhasti. Ég held ég geti alveg hiklaust mælt með þeim. Ég er að vísu pínu óhress með að hafa þurft að borga verisign fleiri þúsund krónur í endurheimtingargjald en ég get víst bara sjálfum mér um kennt.

Ég bið notendur sem urðu fyrir óþægindum vegna "truflunar í þjónustu" innilega afsökunar á þessu veseni.

Ein ummæli við “Fjúkk itt!”

  1. Thetta var hraedilegt timabil fyrir mig eg sat klukkutimum saman adgerdarlaus i vinnunni. Eg vona bara ad sagan endurtaki sig ekki thvi thad eru svona afoll sem madur a ad laera af og lesa ur og vinna i og svoleidis.

    Eg legg til ad thessi dagur verdi kalladur uppstigningardagur og haldinn hatidlegur a undralandi arlega hedanifra. Dagurinn sem ad notendur fundu frelsi, lydraedi og jafnretti. Thegar vid stondum saman getur ekkert bugad okkur!

    Borgar lengi lifi!

    Agust Rafnsson skrifaði 28.4.2004 8:28


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings