ASP/IIS & ADO & XP... *ÁI!*
Oft hef ég andvarpað yfir idjótaskap hugbúnaðarlausna Microsoft og nú er mál að gera það enn einu sinni:
ASP síða sem skrifar í Access gagnagrunn via ADO. Síðan er á IIS þjóni sem keyrir á Windows XP "professional".
Microsoft JET Database Engine (0x80040E09)
Cannot update. Database or object is read-only.
"Hvað er málið?" spyr forritarinn og fer að reyna að laga það. Allt rétt í ASP skjalinu og IIS er galopið. Þá er þetta vandamál með user réttindi á fælinn sjálfann. Þetta er kerfið en hvar er draslið að stoppa?
Access hefur ekki réttindi á möppuna/fælinn sé það keyrt af IUSER_CPU (eða eitthvað). Þá þarf ég bara opna öll réttindi á folderinn og … öhh … hvernig?
Sorry, but your quest has ended here.
Game Over.
Svo virðist sem hönnuðir XP Pro hafi ákveðið að fjarlægja Win2K réttindastýringarnar sem mér fundust annars alveg ágætar. Svo hvað gerir minn þegar hann nennir ekki lengur að klóra sér í hausnum yfir þessu? "Share this folder on the network" og haka við "allow remote users to change my files".
Þetta er það sem á góðri íslensku er kallað skítamix. Það tæki mig lengri tíma að fatta hvernig annars ég mundi gera þetta en að opna þetta svona, forrita síðuna og loka aftur. Rugl.
Hvað var svona gallað við NT/Win2K réttinda kerfið að það þurfti að droppa því?
Getur einhver sagt mér hvernig þetta er annars gert "rétt"? Hvernig get ég gefið réttindi á möppur án þess að opna þær út?

2 ummææli við “ASP/IIS & ADO & XP... *ÁI!*”
"Ingó sagði mér"
Tools -> Folder Options... => View -> Use simple file sharing (Recommended)
Borgar skrifaði 22.2.2004 18:48
damn ..... 2 vikum of seinnnnnn ..... þú veist að allar default stillingar í XP eru gerðar fyrir "notendur", en "notendur" eiga nú til að fokka upp hjá sér stýrikerfunum ef þeir fá of mikið reipi(tökkum/stillingum) til að fikta í.
Jóhann skrifaði 3.3.2004 14:58