mánudagur, 26. jan 2004

Og nú er komið að breytingum!

Og ég er að fara að skipta yfir í þjónustu Og Vodafone. Og það er eitthvað sem mun verða til þess að þegar vængbrotnir geðsmunir mínir súrna enn frekar. Og ég mun þjást og líða fyrir að styðja fyrirtæki sem hvetur Íslendinga til að byrja setningar á og. Og ég enda bitur og fullur fyrirlitningar á sjálfum mér. Og öllum verður nákvæmlega sama.

Og þó mun ég borga lægri símreikninga!

3 ummææli við “Og nú er komið að breytingum!”

  1. Og gleymdu ekki að senda mér nýja númerið...

    Ingo skrifaði 26.1.2004 20:22

  2. Já, ætli það verði ekki vel auglýst þegar þar að kemur. Ég er búinn að vera með sama númer svo lengi að það er mjög óhugnarleg tilhugsun að skipta. Einnig svoldið svekkjandi þar sem núna, á öllum þessum árum, er ég loksins búinn að læra númerið mitt! ;-)

    Borgar skrifaði 26.1.2004 23:27

  3. Og þá er hægt að tala við þig án þess að borga milljónkall á mínútu. Og djöfull er þetta gaman...... Og hahahahahha.......

    helga skrifaði 27.1.2004 5:51


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings