þriðjudagur, 2. des 2003

Two become one

Jæja gott fólk. Þið sem vælið í mér stanslaust um að uppfæra vefkerfið getið hætt núna því það er tilbúið! Þið hin sem vælið í mér að skrifa meira ættuð líka að verða sáttari nú þegar ég er hættur að eyða allri auka orku í að vélrita kóða frekar en þvældar hugleiðingar um lífið.

Það sem ég gerði við síðuna mína í þetta skiptið var að færa wiki hlutann af gamla kerfinu mínu í þetta kerfi og henda gamla draslinu burt. Svo færði ég allar mínar dagbókarfærslur saman í einn haug í þetta kerfi.

Þetta varð að gerast vegna þess að ég var búinn að setja mér upp nýja falda og læsta dagbók sem ég var farinn að skrifa nánast eingöngu í. Ég sá fram á að leggja opnu dagbókina mína niður ef ég mundi ekki sameina. Svo þannig er það.

Einhver vinna er ennþá eftir bæði í fínpússningu á kerfinu og svo þarf að lagfæra brotnar færsluvísanir enda er ég búinn að taka upp almennileg URL a la Már. Það má gerast í jólafríinu… ef ég upplifi slíkt.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar