Ummæli um ummæli
Már gagnrýnir Fréttir.com fyrir klaufaskap í ritskoðun á umræðu. Athyglisverð umræða hefur spunnist í svarhala færslunnar þó eitthvað af henni hefði kannski mátt fara fram í tölvupósti til ritstjóra Frétta?
Þó fólk sé að hrópa á Má finnst mér sjálfum ekkert athugavert við skrif hans. Þau smáatriði sem fólk hefur verið að væla yfir í eru hlægileg. Þar má nefna "notkun á gæsalöppum" sem má auðveldlega ætla að sé tilkomin af því af óvissu Más á því hvernig Fréttir og Steingrímur (ritstjóri Frétta) skilgreina sig. Ég leyfi Má að njóta vafans eins og öllum öðrum sem skrifa atriði sem mætti túlka á fleiri en einn veg.
Auðvitað er það er sjálfsagður réttur Steingríms að eyða því sem hann kýs af vefnum sínum en það er líka sjálfsagður réttur Más að hafa þær skoðanir sem hann vill á því. Að mínu mati á gagnrýni Más fullkomlega rétt á sér og umræðan er holl; annað mál er hvort hann hefur "rétt" fyrir sér.
Það er nefnilega ekki nein "rétt" leið til þess að stjórna svona umræðum. Mig langar að vísa á lætin sem fylgdu því þegar að Sam Ruby dirfðist að "lagfæra" svar á vefnum sínum. Allt fór í háaloft og sýndist sitt hverjum. Þegar rykið settist aftur var auðvitað engin niðurstaða komin í málið önnur en að umsjónarmaður/menn vefja gætu raunverulega gert það sem þeim sýndist á vefjum sínum.
Reyndar verð ég að játa að líkt og Má finnst mér svolítið klaufalegt af Fréttum að stroka bara út heilan svarhala fyrirvaralaust og án útskýringa. Klaufalegt vegna þess að það er einmitt líklegt til að skapa umtal líkt og raun bar vitni.
Nú þegar spam í ummælakerfi er að aukast (þó það sé enn óþekkt á Íslandi) er umhugsunarvert hvort þeir sem ekki hafa tök á því að fylgjast með og stjórna umræðum, sem vissulega fara fram á þeirra ábyrgð, eigi yfirleitt að vera að nota svarkerfi?

3 ummææli við “Ummæli um ummæli”
Hver ætlar að vera fyndinn og segja frá nude spam webcam-inu sínu fyrstur?
Krilli skrifaði 20.11.2003 12:57
Borgar, þú þarft að sjá síðuna þína á makka. Ég held að málið sé að hún er vel forrituð og hugsuð hjá þér (Borgar minn (L)) og er þar af leiðandi ótrúlega falleg, ef hún er renderuð af browser keyrandi á stýrikerfi sem var hannað af fólki sem er ekki ósmekklegt.
Spurning hvort ég verði vinalegri þegar ég nota makka.
Krilli skrifaði 21.11.2003 15:49
Ég er einn sem les þetta, greinilega. En ég sé hér - HTTP://turk.01.is/MT/mt-comments.cgi?entry_id=136 - íslenskan ummælasaxbauta.
Krilli skrifaði 22.11.2003 20:28