Íslensku Vefverðlaunin
Kannski svoldið seint af mér að vera að dissa þetta núna en ég hef bara ekki haft tíma fyrr. Það eru þessi vefverðlaun sem voru veitt núna í þriðja sinn. Mér þótti ekki mikið til þessara verðlauna koma í fyrra en þá var ég að skrifa fyrir tímaritið Sánd og gerði (frekar slappa) úttekt á þessu fyrir þá. Í ár hafa vefverðlaunin aftur hrapað í áliti hjá mér.
Það er ekki það að tilnefndir vefir eru martraðarkennt stórir og sumir hverjir algjör brandari í notkun. Þá vil ég sérstaklega benda á vefinn simaskra.is1 sem er athlægi vefhönnuða og gagnasafnsfræðinga. Ég velti fyrir mér þegar ég lít yfir tilnefningarnar hvers vegna flokkurinn "stærsti vefurinn" sé ekki þarna. Það er þó ekki þetta sem fær mig til að klóra mér í hausnum.
Það er þetta með hugi.is sem er að trufla mig. Hann vann besti vefurinn verðlaunin í fyrra og í ár er hann aftur tilnefndur. Sami vefurinn? Á ég að skilja þetta sem svo að það sé mögulegt að skrifa svo góðan vef að hann komi til með að vera bestur uns annað hvort internetið eða vefsýn líða undir lok? (Hvort sem gerist fyrst?)
Ég velti fyrir mér til hvers þessi verðlaun séu? Hvert er markmið þeirra? Það er augljóst að ef vefur er bestur í sínum flokki eitt árið, hann heldur áfram að vera vel sóttur og uppfærður, og enginn annar vefur veltir honum úr sessi, er hann auðvitað ennþá bestur. En er þetta að fara að stuðla að hverju? Nýsköpun?
Ég legg til að á næsta ári verði veitt verðlaun í flokknum "besta lokaða og læsta einstaklingswikikerfið". Þannig get ég unnið til verðlauna fyrir vefinn minn ár eftir ár eftir ár af því að engum öðrum en mér dytti í hug að forrita jafn heimskulegan vef.
1Uppfært 2007: Síðan þessi orð voru rituð er auðvitað búið að skipta um vef. Ég get stoltur sagst hafa tekið þátt í því.

Ein ummæli við “Íslensku Vefverðlaunin”
Til hamingju með tilnefninguna 2006!
margeir skrifaði 23.1.2007 13:52