þriðjudagur, 11. nóv 2003

Hárið af

Ég er búinn að vera að safna hári undanfarið. Takmarkið var að komast að minnsta kosti í taglhæfa sídd. Þolinmæði mín reyndist hins vegar ekki nógu mikil til þess að ég gæti þetta. Ég hef komist að því að mér finnst ekkert gott að hafa svona mikið hár.

Núna ætla ég að gera mér ferð inná bað að klippa það allt í burtu. Ég er ennþá ekki búinn að ákveða hvort ég ætla að snoða mig eða hvort ég ætla bara að stytta þetta nógu mikið til að það sé þolanlegt… Ætli það fari ekki eftir því hvernig mér gengur með skærin. ;-)

Ég hef ekki klippt mitt eigið hár síðan ég var í pönktískunni en þá var ég alltaf að gera tilraunir. Ein flottasta var þegar ég hellti hvítri málningu í hárið á mér – verst að hún var að flagna og hrynja úr allan daginn… Þó hárið væri töff í nokkra klukkutíma var psudoflasan (hvítar málningarflygsur) sem fylgdi þessu ekki alveg eins mikið pönk.

Ég held samt að ég sé ekkert að fara að gera neinar öfgakenndar tilraunir núna. Mig langar bara ekki að hafa allt þetta hár út um allt! :-P

Vis mí lökk.

3 ummææli við “Hárið af”

  1. Letingi. Skrifaðu meira.

    Krilli skrifaði 17.11.2003 12:18

  2. pseudo - þarna

    helga skrifaði 17.11.2003 17:27

  3. Leti Köggull eins og fyrrverandi sagði alltaf.

    krilli skrifaði 19.11.2003 13:12


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings