fimmtudagur, 23. okt 2003

SID Compo II

CreaMD var að senda mér póst til að láta mig vita að það væri SID tónlistarkeppni í gangi. Skilafrestur er til 8 Nóvember. Mig langar að senda eitthvað inn. Mér finnst svo gaman að taka þátt í þessum keppnum, þrátt fyrir að ná aldrei nema svona "í meðallagi" árangri (síðast varð ég 9ndi af 30).

Gallinn er að ég hef engan tíma til þess að skrifa lag núna. Það er allt á fullu: vinnustúss, skóli, útskriftir og svo er ég að reyna að sauma mér búning fyrir Hrekkjarvökupartíin sem ég þarf að mæta í. Sem sagt, ekki séns að ég geti tekið mér tíma til þess að fara að semja tónlist (því er nú ver og miður). Spurning hvort að ég á ekki bara eitthvað gamalt dót sem ég get sent inn?


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings