fimmtudagur, 2. okt 2003

Niðurtalning hafin

Mig langar bara að minna á, nú þegar allir eru nýbúnir að fá útborgað, að eftir aðeins tvær vikur á ég afmæli!

Ójá! Aðeins tvær vikur í stóra daginn! Ég lýsi því hér með yfir að frá og með núna verður 16. október alþjóðlegur dagur Borgars (eða "The World Borgar Is Just So Fucking Great Day"). Google verður örugglega með eitthvað sniðugt lógó í tilefni og svona því þeir sem þekka mig ekki persónulega verða jú að fá smá skammt af gleðinni.

Ég veit að flest ykkar eruð vön því að ég sé ekkert mikið fyrir að þiggja, meira svona gefa týpan. Nú er hins vegar komið að því að þið hyski sem ég er alltaf að gera greiða farið að launa þetta með veraldlegum hlutum! (Þið vitið hver þið eruð.)

Þeir sem þekkja mig ekki alveg nógu vel til að vita hvað ég mundi helst vilja er bent á óskalistann. Það að auki er alveg vel hægt að fórna áfengi, mat, peningum, reykhelsum, myrru og hreinum meyjum til mín eins og öllum andlegum leiðtogum finnst best. Þið þekkið reglurnar, sýnið mér nú hvað í ykkur býr! ;-D

8 ummææli við “Niðurtalning hafin”

  1. a) Varðandi nafngift dagsins, hefurðu verið að lesa soldið mikið prittígörl uppá síðkastið? ;)

    b) Mér líst vel á því að fórna einhverju þér til heiður (think Lavey) en ég þekki engar hreinar meyjar. Telst það með ef mér þekkst að finna einhverja sem hefur ekki sofið hjá nýlega?

    Unnur skrifaði 5.10.2003 15:29

  2. a) Reyndar ekki? Það verður bætt úr því snarlega nú þegar þú hefur náð að gera mig óstjórnlega forvitinn. wF2db) Tja, hvað meinarðu með nýlega? Eins og "ekki sofið hjá síðasta hálftímann" mundi alveg duga. Ég er í alvöru ekkert mikið fyrir hreinar meyjar, þær eru meira bara til skrauts en brúks. =)

    Borgar skrifaði 5.10.2003 18:29

  3. Var að skoða prittígörl og fatta hvað þú ert að meina. Þetta átti meira upptök sín á þessari síðu: HTTP://www.google.com/holidaylogos.html

    (Fyrir forvitna er prittígörl hér: HTTP://girlsarepretty.com/)

    Borgar skrifaði 5.10.2003 19:49

  4. ó krapp krapp krapp en borgar þú færð ást mína óskipta (eins og það sé eitthvað nýtt), kossa og bónus ef þú biður fallega á alþjóðlegum degi þínum

    jonni skrifaði 6.10.2003 16:14

  5. Ást? Pfttpt... ég puðra bara nú á svoleiðis vitleysu!

    Gémmer frekar bara sígó! Þó ég sé hættur að reykja get ég þó alltaf bíttaðenni fyrir eitthvað annað ef ég lendi t.d. í fangelsi. =D

    Borgar skrifaði 7.10.2003 3:30

  6. það var þér líkt vanþakláta gerpið þitt að neita þér um ást mína en þú færð hana ekki flúna. Það er samt ekkert mál að gefa þér síkó...veit að þú villt vera villtur og þú veist að það er kúl að reykja...síkó getur líka verði bónus bónus þú skilur;)

    Jóhann Ágúst Jóhannsson skrifaði 7.10.2003 17:27

  7. Bónusbónus? Er það svona sígó eftir sex? ;p

    Unnur skrifaði 7.10.2003 22:14

  8. einn möguleiki...

    Jonni skrifaði 8.10.2003 0:49


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar