laugardagur, 18. okt 2003

Lán og ólán

Var að koma heim úr bíó. Ég fór að sjá Hero á kvikmyndahátíð Regnbogans. Hún byggir á sama grunnplotti og Emperor and the Assassin og minnir óneitanlega á Crouching Tiger Hidden Dragon (enda margt sama fólkið sem kemur að þessu). Ég mæli hiklaust með henni. Það er reyndar bara ein sýning eftir held ég svo best er að hafa hraðann á. ;-)

Á leiðinni heim mundi ég eftir því að ég á Crouching Tiger Hidden Dragon á DVD, hún er bara búin að vera í láni ansi lengi. Ég er allt of duglegur við að lána hlutina mína. Við frekari umhugsun kom í ljós að það eru bara þónokkrir hlutir sem ég sakna:

  • Crouching Tiger Hidden Dragon DVD (augljóslega)
  • Tonto's Expanding Head Band CD
  • Electronic Toys CD
  • American Psycho Bók
  • Berserk CD's

Sumt veit ég hvar er niðurkomið, annað ekki. Ég ætla ekkert að vera að biðja ykkur sem eruð með þessa hluti að skila þeim því þið eigið að vera löngu búin að því. Drullist þið til að skila dótinu mínu! :-@

Frá og með núna eru allir komnir í lánastraff þangað til að Crouching Tiger Hidden Dragon kemur aftur í mínar hendur. Það eru því hagsmunir ykkar allra að hjálpast að við að koma þessari mynd aftur til mín. =)

7 ummææli við “Lán og ólán”

  1. Ég er saklaus en mig minnir að þú sért með ansi góðan disk í láni frá mér úr kvikmynd þar sem mannát er stundað og heitir Ravenous. Nyman og Albran hjálpast þar að og Orbit nokkur fremur endursköpun á einu lagi í lokin sem er frábært.

    Er þetta rétt?

    Jonni skrifaði 20.10.2003 17:30

  2. Jámm, það er rétt. Í það minnsta var ég með hann. Þú varst búinn að rukka mig áður svo það er mögulegt að ég hafi skilað honum. Ég ætla að athuga þetta til öryggis. Annars ert þú nú alls ekki slæmur lánþegi, þið Biggi fáið hæstu einkunn hjá mér fyrir að skila alltaf öllu (enda báðir skilvísari en ég).

    Borgar skrifaði 20.10.2003 18:03

  3. Takk:) Þú ert alls ekki slæmur sjálfur...man einmitt eftir að hafa spurt um Ravenous því Erna vildi fá'ann að mig minnir. Annar hef ég alveg nóg að hlusta á sjálfur og því alls ekki stressaður með etta;)

    Ættla á Kill Bill á morgun og er orðinn svakalega spenntur.

    Jonni skrifaði 20.10.2003 18:47

  4. þú átt líka Ice age DVD hér á sólvallagötunni frá því hann bróðir minn var seinast á landinu... á ég að skila honum til tp fólksins og láta það skila þér honum???

    Gyða piða ingóslitlasystir skrifaði 22.10.2003 18:22

  5. Hey, já! Það er alveg brilliant plan! Þá þarf ég ekki að fara alla leið í kaupstaðinn til þess að sækja mér þetta. ;-)

    Borgar skrifaði 22.10.2003 18:40

  6. vúpps... :-| var alveg búinn að steingleyma!

    Ingó skrifaði 22.10.2003 19:27

  7. Þá ertu líka væntanlega búinn að gleyma að ég sagði við þig þegar þú fórst út að ég gæti alveg sótt þetta og þú þyrftir ekki að hafa áhyggjur? Svo er það bara ég sem er ekki búinn að nenna vestureftir til að sækja þetta ;-)

    Borgar skrifaði 22.10.2003 20:09


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings