Greinasafn fyrir October, 2003

föstudagur, 24. okt 2003

Nostralgía fyrir forritara

Man einhver eftir því þegar maður þurfti allaf að vera að nota stack? Það var svo mikið pain in the butt að þurfa að vera að sóa dýrmætum clockcycles í að geyma registera þegar maður opnaði interrupt. movem.l d0-d1/a0-a1,-(sp) ..gera eitthvað shit við registerana… movem.l (sp)+,d0-d1/a0-a1 rts Þetta var auðvitað svo fáránleg eyðsla á processortime að maður gerði þetta aldrei. [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 23. okt 2003

SID Compo II

CreaMD var að senda mér póst til að láta mig vita að það væri SID tónlistarkeppni í gangi. Skilafrestur er til 8 Nóvember. Mig langar að senda eitthvað inn. Mér finnst svo gaman að taka þátt í þessum keppnum, þrátt fyrir að ná aldrei nema svona "í meðallagi" árangri (síðast varð ég 9ndi af 30). Gallinn [...] Lesa áfram...

laugardagur, 18. okt 2003

Lán og ólán

Var að koma heim úr bíó. Ég fór að sjá Hero á kvikmyndahátíð Regnbogans. Hún byggir á sama grunnplotti og Emperor and the Assassin og minnir óneitanlega á Crouching Tiger Hidden Dragon (enda margt sama fólkið sem kemur að þessu). Ég mæli hiklaust með henni. Það er reyndar bara ein sýning eftir held ég svo [...] Lesa áfram...

föstudagur, 17. okt 2003

Takk fyrir

Ég er djúpt snortinn af öllum þeim heillaóskum og afmæliskveðjum sem mér bárust á afmæli mínu í gær. Mig langaði bara að koma á framfæri þakklæti mínu til allra þeirra sem gerðu afmælisdaginn minn að þeim dýrðardegi sem hann varð. Domo arigato gozaimashita mina-san! Lesa áfram...

Hann á afmæí daaag!

Í fyrra þegar ég átti afmæli var ég svo upptekinn af vinnu að það Úlfar sem sagði mér að ég ætti afmæli. Hann kom og bankaði hjá mér og óskaði mér til hamingju með afmælið. "Ha?" horfði ég á hann. Hann varð flóttalegur, "Er ekki 16. í dag? Áttu ekki afmæli?" Ég ranka loksins við [...] Lesa áfram...

sunnudagur, 12. okt 2003

Sænska leiðin

Allir eru að tala um sænsku leiðina gegn vændi. Svo best sem ég veit kemur umræðan í kjölfar stefnublaðamannafundar VG. Frumvarp um bann við kaupum á kynlífsþjónustu Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs hyggst leggja fram á komandi þingi frumvarp til laga um bann við kaupum á kynlífsþjónustu. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður VG, verður fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Þetta er tekið af vef [...] Lesa áfram...

sunnudagur, 5. okt 2003

Verisign

Já, um daginn þegar Trölli stal internetinu varð auðvitað allt vitlaust. Fyndið að sá nördana reiða. Það er í lagi að pirra þá pínu en ef þú ert augljóslega að gera eitthvað sem þú mátt ekki þá færðu herinn upp að hliðinu á 1000kbps. Reyndar her í Linux stuttermabolum með fitugt hár og lítið líkamlegt [...] Lesa áfram...

fimmtudagur, 2. okt 2003

Niðurtalning hafin

Mig langar bara að minna á, nú þegar allir eru nýbúnir að fá útborgað, að eftir aðeins tvær vikur á ég afmæli! Ójá! Aðeins tvær vikur í stóra daginn! Ég lýsi því hér með yfir að frá og með núna verður 16. október alþjóðlegur dagur Borgars (eða "The World Borgar Is Just So Fucking Great Day"). [...] Lesa áfram...

Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar