Meira um þrífætinga
Ég er gjörsamlega heltekinn af þessu þrífætlinga máli. Nánast allir sem ég hef talað við virðast bara gera ráð fyrir að þetta sé ekkert mál og díla við málið með því að segja eitthvað eins og "jújú, bara ef þeir eru með liðamót." - Jahá… Hvernig? Nákvæmleg hverju mundi það breyta? Þetta er bara ekki nálægt því að vera nægileg útskýring fyrir mann sem er sannfærður um að þetta gangi bara alls ekki upp.
Svona til þess ég virðist ekki vera algör fáviti er vert að taka fram að ég hef alveg (óljósar) hugmyndir sjálfur. Ég get bara ekki sýnt fram á eða útskýrt nægilega vel hvernig þær mundu virka. Sem er ergilegt. Svo áður en ég verð geðveikur af þráhygguröskun hef ég sett málið í hendur færari manna. Ég sendi eftirfarandi spurningu á Vísindavef Háskólans:
Er það raunhæft að þrífætlingur, eins og td. í bókinni Innrásin frá Mars, gæti gengið um? Hvernig mundi það ganga upp? Er til þrífætt dýrategund?
Spurningin átti upprunalega að vera lengri og snyrtilegar sett upp en vísindavefurinn er þver og vill bara örspurningar. Ég hélt dýrategundinni þarna bara svona til að vera meira consistant, en allir vita augljósu svörin; Kengúrur og sennilega einhverjar örverur (hey, það er til örvera með því sem samsvarar utanborðsmótor!). Ég á reyndar ekki von á miklu fá vísindavefnum, það er bara þannig að ég hef of oft séð þá svara undarlega.
Til þess að tryggja árangur hef ég líka lagt in spurningu á spjallþræði Straight Dope. Sú spurning er mun betur orðuð að mínu mati og er líklegri til að gefa betri svör.
In the book War of the Worlds by H. G. Wells, as well as in some other old sci-fi classics, tripods walk the Earth terrorizing mankind. How would they do that? And presuming that they could walk, how would you explain to me how the system works?
Nú er svo bara að bíða og sjá hvort eitthvað bítur á. =)

2 ummææli við “Meira um þrífætinga”
Áráttu/þráhyggjuröskun, segirðu....? *spekingslega strokið um skeggið*
Heiða skrifaði 29.9.2003 3:19
Jæja, allir að koma yfir til mín. Ég var að búa til animation til að sýna hvernig ég sé þetta dæmi fyrir mér. Tvær gangtegundir. Þetta er auðvitað ekki bundið neinum eðlisfræðilögmálum en mér finnst þetta alveg geta "gengið" upp...ahahaha...damn!
Ingó Þrífætlingur skrifaði 29.9.2003 13:25