Friendster

Hvað er málið með þetta fyrirbæri? Af hverju vill friendster ekki leyfa mér að samþykkja nýja vini? Er núna komið nóg? Er ég búinn með kvótann?
Ég hef séð að sumir eiga mjög marga vini þarna inni… miklu fleiri en ég! Ég á bara 15. Ég hef séð notendur með mikið fleiri vini. Krilli á til dæmis 68 við síðustu talningu? Af hverju vil friendster ekki leyfa mér að eiga svona marga vini? Af hverju er "not allowed" að ég samþykki nýja vini?
Þetta fólk vill vera vinir mínir og ég mun sko ekki láta neina frat heimasíðu stöða vináttu og ást í lífi mínu. Ég lýsi hér með frati á friendster og lofa því að þótt þessi vonda heimasíða vilji koma í veg fyrir það mun samband okkar allra bara þrífast og dafna eins og gul blóm á litlum akri!

5 ummææli við “Friendster”
Vá ég var alveg að velta því fyrir mér afhverju þú vildir ekki vera vinur minn, hvort það væri vond lykt af mér eða hvað. Líður mun betur núna sko :->
Sigga skrifaði 23.9.2003 10:53
Já ég líka, sko...
Heiða skrifaði 23.9.2003 13:11
Sussu bía. Svona svona... Við erum öll vinir (en ég er samt engin drusla sko!). =)
Það er annars að frétta að ég er að fá fleiri "New Friend Request" póst og ég veit bara að þetta á eftir að enda í logandi slagsmálum.
Borgar skrifaði 23.9.2003 14:00
já bíddu bara þangað til ég hitti þig næst :P
Hrós skrifaði 23.9.2003 20:19
ÉG VINNNNNNNN
Kristleifur skrifaði 28.9.2003 11:33