mánudagur, 1. sep 2003

Oh, Dark Mother

Ég er búinn að vera hættur að reykja í hvað? Nokkra mánuði núna?

Ég get ekki byrjað að lýsa því hvað mig langar alveg óstjórnanlega mikið í sígarettu akkúrat núna! Það er voðalega auðvelt fyrir mig að standa upp, labba niður og betla eina af Úlfari. Hann mundi sennilega ekki hika við að "lána" mér eina. Varla sakar það að ég fái mér eina? Ég meina, það er ekki þar með sagt að ég sé byrjaður aftur bara þótt ég reyki eina?

Svo er líka ekkert víst að mér finnist hún góð. Nei, eiginlega er það bara gefið að mér muni finnst hún ógeðslega vond og vilji ekki sjá þetta framar. Þetta getur jafnvel verið gott fyrir mig, styrkt mig í því að vera hættur að reyka. Já, þá man ég betur hvað það er ógeðslegt að reykja…

Ég get líka bara reykt td. hálfa sígarettu, svona rétt til að slá á fíknina, rétt til að fá smá nikótín í blóðið, rétt aðeins til að smakka… Æi!…


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar