Allt er þá þrennt er

Held annars að ég sé loksins búinn að ná því hvernig þetta er leyst. Byrjum á því að koma nokkrum hlutum á hreint:
- Þyngdarpunktur "fætlu" verður alltaf að vera beint undir (í miðju) þess svæðisins sem haldið er uppi.
- Svæði tvífætlinga er því í raun línan milli fótanna á þeim og þeir færa þyngdina eftir línunni fram og til baka þegar þeir labba (við gerum þetta með því að rugga búknum til hliðanna).
- Svæði þrífætlinga er þríhyrningurinn milli lappana á þeim.
Þrífætlingur mundi ganga ca. svona:
- Þyngdarpunktur færður frá miðju yfir á punktinn milli þeirra lappa sem á ekki að lyfta. Þetta yrði að háð a.m.k. einum liðamótum per löpp.
- "Lausu" löppinni er lyft og hún færð þangað sem hún ætti að fara. Þetta yrði væntanlega að gerast með snúningslið við búk.
- Þyngdarpunktur færður annað hvort á miðju fyrir kyrrstöðu eða farið aftur á skref 1 (nema fyrir aðra löpp).
Þannig er ég að sjá þetta fyrir mér núna. Vandamálið er að búkurinn þyrfti að sveiflast töluvert mikið. Það yrði ekki beint þægilegt að "sitja í". Þess vegna væri nauðsynlegt að setja haus ofaná til að halda farþegum og/eða sjónútbúnaði stöðugum. Svo er ég viss um að þetta sé sérstaklega óheppilegt vegna þess að því stærri skref sem þrífætlingurinn ætlaði að taka, þeim mun meiri sveiflugangur yrði á búknum.
Ingó er búinn að gera hreyfimynd sem sýnir gangandi þrífætling. Fyrra göngulagið sem hann sýnir er nokkuð rétt. Mér finnst það reiða sig full mikið á hangtime en hugmyndin gengur alveg upp. Svo er þrífætlingurinn hans líka mjög töff! ;-)
Sem sagt. Ég gengst við því að hægt sé að smíða róbót, eða líkama, á þremur fótum sem gæti gengið. EN… Ljóst er að þessir týpísku þrífætlingar sem við sjáum myndgerða í vísindaskáldsögum gætu ekki með nokkru móti komist ferða sinna. Þetta er skemmtilegt vegna þess að nú mun ég ekki geta horft á Star Wars aftur án þess að glotta. =)
Það sem er sorglegast við þetta allt er hvað ég varð fyrir miklum vonbrigðum með alla þá sem heyrðu spurninguna mína og veifuðu henni frá sér með fullyrðingum eins og "það þarf bara liðamót" eða "hvernig mundi þá tvífætlingur geta gengið." Ef ég væri að spyrja um hvernig flugvélar héldust á lofti væri ekki nóg að segja við mig "ekkert mál, þarf bara hreyfil."
Það eru kannski bara grundvallar mistök hjá mér að vilja skilja hvernig hlutir virka? Það er kannski akkúrat það sem verndar okkur frá áráttu og þráhyggjuröskun að vilja bara taka öllu sem við sjáum sem sjálfsögðu?

16 ummææli við “Allt er þá þrennt er”
Sorry Borgar, en hvaða Star Wars myndir horfðir þú á? Ég man ekki eftir neinum þrífætlingum í Star Wars. Tvífættum og ferfættium stríðsvélum jú, en ekki þrífættum!
Svo er annað, þessi útskýring þín er í flestum meginatriðum endurtekning (ég skal viðurkenna, örlítið ýtarlegri) á fyrri útskýringum mínum á því konsepti sem ég sýni í hreyfimyndinni, þannig að ekki halda því fram að ég hafi ekki reynt. Reyndu bara að lesa hlutina almennilega næst! ;-)
Ingó skrifaði 29.9.2003 16:08
...en takk fyrir að segja að myndin mín sé töff :-$
Ingó skrifaði 29.9.2003 16:10
Ég hef séð allar Star Wars myndir sem hafa verið hefnar út af Lucasfilm. Þegar ég taldi síðast voru þær 5. Það er rétt að það eru engir þrífætlingar í þeim en ég er að nota Star Wars sem svona ígildi hinnar týpísku sci-fi myndar. Það eru alveg nóg af 'gæti ekki í alvöru gengið um' fætlum í Star Wars til að þetta sé réttlætanlegt comment. Ég mun aldrei horfa á fætlur í sci-fi myndum eins.
Ýtarleikinn er oft það sem skiptir máli þegar reynt er að koma öðrum í skilning um eitthvað flókið. Ekki vera súr, þú komst actúallí mjög vel út og bentir í raun á allt sem skiptir máli. Ég var meira að bitrast út í þá sem ég "talaði" við en þá sem ég "skrifaðist á við" (já ég fékk þetta algerlega á heilann). ;-)
Það var ekki eins og ég hefði ekki sjálfur óljósar hugmyndir um hvernig þetta mundi virka en ég vil helst vera viss. Svo er líka hluti af vandamálinu hvernig það er hægt að útskýra þetta. Hvernig segirðu einhverjum hvernig rúmba er framkvæmt? ;-)
Ég er actúallý ekkert viss um að þetta sé NÓGU ýtarlegt hjá mér... Það sem ég að sjá fyrir mér er jafnvel flóknara. Það verður í alla staði gaman að sjá hvernig Vísindavefurinn fer að! =)
Borgar skrifaði 29.9.2003 17:27
Ég held þið séuð búnir að skemmileggja tripods trílógíuna fyrir mér. Þarf samt endilega að grafa BBC þættina upp einhversstaðar aftur til að kveljast yfir.
Heiða skrifaði 29.9.2003 22:07
Já, ég er einmitt búinn að vera að hugsa um að redda mér þessu. Það er samt frat að BBC eru bara búnir að gefa út fyrstu seríuna á DVD. :-P
En hey, þeir ætla að gera nýja Dr. Who seríu. Það verður spennandi að sjá hvað gerist með það. Gaurinn sem skrifar hana er ekki búinn að gera neitt nema einhverjar dramaseríur um homma með andleg vandamál. Er Dr. Who að fara að koma út úr.. eh.. símaklefanum? :-D
Borgar skrifaði 30.9.2003 0:48
hei ég hef elskað þrífætlingana síðan þeir fóru í umferð á rúv 86 eða 87. hvað getur maður reddað þeim????????
punkH skrifaði 1.10.2003 15:07
Þyngdarpunktur er alltaf punktur, aldrei "svæði". Þannig er í raun enginn grundvallarmunur á göngugetu þrífætlings og tvífætlings, nema að þrífætlan hefur möguleika á að hafa tvo stoðfætur á jörðinni í einu, sem ef eitthvað er gefur bara meiri stöðugleika. Fylgstu bara með þrífættum dýrum (köttum eða hundum sem hafa lent í slysi) ef þú efast. Göngulag þeirra er oft mjög mjúkt - og þó er anatómía þessara dýra mjög langt frá því að vera vel optimeruð fyrir aðeins þrjá fætur.
Már Örlygsson skrifaði 2.10.2003 1:57
...en já auðvitað þarf að hafa sveifludempara fyrir farþegarýmið í vélþrífætlunni eins og við tvífætlurnar notum til að halda hausnum á okkur tiltölulega kjurrum. Það gefur auga leið. Kannski var það punkturinn sem þú varst að hugsa aðallega um?
Már Örlygsson skrifaði 2.10.2003 2:03
Ég sé samt ekki hvernig það þyrfti að vera eitthvað mikið flóknara eða erfiðara en sveifludempun í tvífætlu.
Már Örlygsson skrifaði 2.10.2003 2:05
(þetta verður seinasta kommentið, ég lofa, sorrí)
Einföld tilraun:
1) stattu á öðrum fæti.
2) beygðu þig niður og settu báðar hendur í gólfið fyrir framan stoðfótinn.
3) labbaðu á "þremur fótum"
4) taktu eftir því að þetta er ekkert mál og sveiflan á líkama þínum (eða haus) er í raun ekkert meiri en þegar þú gengur á tveimur fótum.
5) stattu upp og biddu vinnufélaga/sambýlisfólk afsökunar á furðulegu háttalagi þínu. Berðu fyrir þig að Már hafi látið þig gera þetta.
:-)
Már Örlygsson skrifaði 2.10.2003 2:11
Þau sögðu að það væri engin afsökun fyrir svona hegðun og að þú ættir að skammast þín fyrir að vera að ráðskast með einfeldinga. Þetta er auðvitað helber lygi því að ég var auðvitað búinn að reyna þetta fyrir löngu síðan (og vissi þess vegna að þetta var hægt).
Það sem var aðallega að trufla mig var hvernig svona klassískur sci-fi þrífætlingur mundi komast upp með þetta. Þá erum við að tala um symetrískan "war of the worlds"-style þrífætling. Þeir eru auðvitað bara hannaðir til að vera kúl, en ekki til að hreyfast.
Ég skal vera fyrstur til að játa að þrífætlingur getur gengið (ég hef m.a. séð bíómynd um þrífættan hund). En í alvöru talað, skoðið þig myndirnar og segið mér að þetta geti allt gengið um:
HTTP://drzeus.best.vwh.net/wotw/other/other.html
Borgar skrifaði 2.10.2003 17:30
Hey, svona til að ganga alveg frá áliti manna á sci-fi myndum yfir höfuð, hvernig væri að velta því næst fyrir sér hvernig í fjandanum þetta hérna á að geta flogið! ;-)
Ingó skrifaði 3.10.2003 14:05
"þetta hérna" átti auðvitað að vera: HTTP://www.starwars.com/databank/vehicle/speederbike/index_eu.html. Borgar, commenta systemið hendir reglulega út HTML tögum sem virkuðu í preview!
Ingó skrifaði 3.10.2003 14:07
My point of course being; who gives a damn! ;-)
Ingó skrifaði 3.10.2003 14:08
"the Imperial speeder bike is a slim, single-person repulsorlift conveyance"
"A repulsorlift is a type of antigravity engine that allows vehicles and vessels to push against gravity fields, providing flight."
Það er lengi búið að fantasera um repulsorlifing. Hver man t.d. ekki eftir Tom Swift bókunum? Uppfinningamaðurinn ungi byggði einmitt repulsion knúið geimfar sem hann notaði til að komast til tunglsins.
Sjá: HTTP://www.geocities.com/Area51/Vault/3712/racemoon.html
Borgar skrifaði 4.10.2003 3:07
Einmitt, Tom Swift! Tók sjálfur massagott Tom Swift tímabil fyrir c.a. 15 árum, góðar minningar það. Spurningin er hvort antigravity theorían gæti eðlisfræðilega gengið upp. Þá finnst mér þrífætlingarnir líklegri til að virka!
Ingó skrifaði 8.10.2003 13:44