föstudagur, 8. ágú 2003

Netið lýgur?

Miðvikudagurinn fór í töff, ég fór að Glym með múmíunni. Ég átti reyndar ekki von á að sú gamla væri eins drjúg og hún var. Sé að ég þarf að draga hana meira út, td. alltaf þegar ég finn engan annan til þess að níðast á. =)

Um kvöldið fór ég svo og hitti Unni og horfði á Twin Peaks (population 51.201) með hennar fólki. Hún segir að það sé ekkert að marka myndirnar af mér hérna og ég skildi það helst að hún héldi að ég væri meiri streitari en ég sjálfur tel. Kannski ekki verra að þessi síða fegri mig aðeins, ekki veitir af. Reyndar er það rétt að ég er hættur að reykja og að mestu hættur að borða sykur, kaffi og áfengi… Ehmm… Það er að renna upp fyrir mér að hugsanlega er ég mun meiri streitari en ég held? Frekari rannsókna er greinilega þörf - ég læt vita hvernig fer!

Ég hafði reyndar heyrt það áður að þessar myndir væru ekki beint nákvæmasta heimild um útlit mitt ever. Það er nú bara svona. Fólk festist misjafnlega vel á filmu, ég td. sá á miðvikudaginn að Bjarni Rúnar er mun myndarlegri en myndir á vefnum hans gefa til kynna. Það er stundum eins og þrívíddin skipti öllu máli, eða hreyfing, eða…?

Annars eru síðustu dagar bara búnir að vera að fara í eitthvað rugl og ég hefði sennilega ekkert farið út úr húsi ef Krilli hefði ekki beinlínis dregið mig út. Ég hef verið sofandi nánast 24/7, líka þegar ég hef verið vakandi. Spurning um að taka upp óhóflega kaffineyslu aftur? Allavega er ég ekki búinn að framkvæma rassgeit og er alveg miður mín yfir því. Geri átak um leið og ég nenni! ;-)


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings