laugardagur, 2. ágú 2003

Hannes fluttur, pt. 2

Hannes hafði fengið mig til að lofa að hjálpa sér í dag líka svo að ég varð að standa undir því; með því að fá hann til að hjálpa mér! :-) Með Bigga með mér í liði fórum við í niður í steinsmiðju og bárum 1/2 búslóð sem var í geymslu þar niður í sendibílinn sem Hannes hefur að láni. Hannes ætlaði að fá svefnsófa lánaðan frá mér en það gekk ekki upp því að sófinn var of stór.

Hvað um það. Búslóðin varð að komast upp í Grafarvog því að afi er búinn að selja smiðjuna. Það tók bara tvær ferðir. Já og ég er semsagt búinn að koma í veg fyrir að ég æfi frekari hnefaleika í bílskúrnum í bráð. Kannski allt í lagi því eftir svona annasaman dag (m.a. IKEA, flutningur á rúmi og fl., ofnaburð fyrir Ingó…) þarf maður ekkert að vera að boxa. Verst bara að þetta er ekki alveg fyrir bakið á mér.

Kvöldið er bókað í innfluttnings/útfluttnings partí fyrir Háaleitisbrautina og svo á Andrea afmæli… Ætli þetta sleppi ekki örugglega með góðri skipulagningu? :-S


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings