Bíómyndir eftir mínu höfði
Fór að sjá Life of David Gale í gærkvöldi í boði Jonna. Hún situr ótrúlega í mér. Í hléi fannst mér hún fín sem svona vídeóræma, ekkert stórfengleg, bara svona ágætis afþreying. Þegar ég kom út úr bíó var ég bara vel sáttur við hana og fannst hún góð. Núna er hún svo að koma aftur til mín því ég er bæði búinn að vera að velta söguþræðinum aðeins í hausnum og einnig að hugleiða málefni tengd myndinni ss. dauðarefsingu og Kate Winslet (sem er undarlegt því að mér hefur ekki þótt hún sérstaklega kynþokkafull hingað til?).
Þrátt fyrir að mér hafi þótt hún góð er samt viðbúið að ég fari frekar aftur á Pirates of the Caribbean sem er amk. næst besta sjóræningjamynd sem ég hef séð. Sú besta er auðvitað Pirates eftir Roman Polanski sem ég keypti mér fyrir túkall á vídeóútsölu einhversstaðar í myrkviðum Skotlands.
Ég fæ seint skilið hvers vegna það eru ekki gerðar fleiri sjóræningjabíómyndir? Allir eru að fíla þetta svo hvað er málið? Hmm… Fyrst ég er byrjaður langar mig líka að benda á að það stórlega vantar fleiri myndir með kúl hlutum! Bíómyndir með foxy glæpakonum í leðjuslag við vampírukúreka. Það mætti til dæmis alveg búa til bíómynd um ninjasamúræja sem berjast við vélmenni úr geimnum sem komin eru til Jarðar í tilgangi sem skiptir ekki máli. Bogi Ágústsson gæti leikið vélmennakónginn.

3 ummææli við “Bíómyndir eftir mínu höfði”
hver er bogi ágústsson aftur?
og: þegar ég músa yfir Comments linkinn gerir Opera furðulega hluti. brjálast og slengir töflunum til.
krilli-bú skrifaði 20.8.2003 21:49
Bogi Ágústsson er stíflaði grái fréttamaðurinn á ríkisútvarpinu-sjónvarpi. Þessi sem er svo stífur að hann getur varla talað.
Hvaða töflum? =)
Borgar skrifaði 21.8.2003 11:01
Þessi færsla er í topp tíu Bogi Ágústsson síðunum á google
krilli skrifaði 14.11.2006 22:06