þriðjudagur, 1. júl 2003

Vífilsfell

Var að koma heim úr stuttri göngu á Vífilsfell. Við Hannes rúlluðum upp í Jósepsdal og skokkuðum svo upp á fjallið. Eins oft og maður hefur keyrt þarna framhjá hef ég aldrei komið upp áður.

Útsýnið var nákvæmlega ekkert vegna þess að tindurinn var hulinn skýi. Það tók okkur smá tíma að finna rétta tindinn en GPS tækið reddaði málinu og við fundum hann að lokum.

Á tindinum var sérkennilegt um að lítast því að gljúpt móbergið er sandblásið í sérkennilegar myndir og skýjaþokan gaf þessu annarlegan blæ. Nú þarf ég bara að fara þetta aftur í heiðskíru!


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar