miðvikudagur, 2. júl 2003

Vakinn með kossi í draumi

Mig dreymir venjulega ekki þannig að ég muni það en ég þekki samt alveg óvenjulega drauma þegar ég upplifi þá. Í nótt dreymdi mig alveg stórundarlegan draum.

Mig dreymdi að ég væri á bar í einhverjum kjallara. Eftir á að hyggja hlýtur hann að hafa verið erlendis vegna þess að þarna var plássmikið og óklístrað dansgólf. Dansgólf sem Halldóra Geirharðsdóttir leikkona dró mig út á eftir töluvert þjark. Hún var stórglæsileg í draumnum, með uppsett hárið, í galakjól og sminkuð.

Ég var frekar feiminn við hana því mér fannst hún svo glæsileg og við döðruðum stutta stund áður en hún gerir sér lítið fyrir og kyssir mig. Mér varð svo mikið um að ég vaknaði með andfælum. Meiriháttar undarlegt alveg. Ég sat þarna í rúminu glaðvakandi og svo hissa að ég átti ekki til orð. Svo var ég líka pínu leiður yfir að hafa misst af framhaldinu.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Stillingar síðu: Nota mínar stillingar