þriðjudagur, 29. júl 2003

Símamál

Við Ingó fórum og sóttum símann minn í viðgerð hjá Svar í dag. Tæknimaður Svars náði ekki að framkalla villurnar sem ég er að fá og gerði þar að leiðandi ekki rassgeit við símann. Æði.

Það vill svo til að ég veit vel að villurnar sem ég er að fá eru böggar í stýrikerfinu og hugbúnaðaruppfærsla mundi redda þessu. Eini gallinn er að Svar (sem eru "umboðsaðilli" Panasonic á Íslandi) eru ekki með nógu stóran samning við Panasonic til að geta flassað nýtt kerfi á símann.

Ég sit því upp með böggaðan síma sem vill stundum ekki leyfa mér að skrifa SMS og er ónýtur í WAP. Það sem ég get gert í stöðunni er annað hvort að kaupa mér 9000 kr. snúru og flassa draslið sjálfur (ég er með hugbúnaðinn) og þar með henda ábyrgðinni út um gluggann og eiga það á hættu að rústa símanum.

Hins vegar get ég líka bara tekið þennan 9000 kall og keypt mér síma sem er þjónustaður á landinu. Ég verð að játa að ég er heitari fyrir nýjum Ericsson T610 en að enda í 9000 króna tapi með ónýtan síma.


Þessi síða

Greinasafn

Leit á þessari síðu


Page style: Use my settings